Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Ólétt kona meðal hinna myrtu

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Blóði drif­inn hús­veggur Ung verð­andi móðir var myrt á þaki heim­ilis síns af Ísra­els­her í gær. Mynd: Instagram

Að minnsta kosti sjö Palest­ínu­menn hafa fallið og meira en 10 særst í árásum Ísraela á Gasa­svæðið síð­asta sól­ar­hring­inn, en Ísrael heldur áfram að brjóta á tæp­lega árs­gömlu „vopna­hléi“. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa einnig sagt að vopna­hléið, sem tók gildi 10. októ­ber 2025, sé brot­hætt og að loft­árásir, sprengju­árásir og dróna­árásir haldi áfram. Alls hafa því minnst 21 verið drepnir frá 26. sept­em­ber, þar af ólétt kona.

Vitni og heil­brigð­is­starfs­fólk segja að sex manns hafi látið lífið þegar ísra­elskur dróni réðst á fólks­flutn­inga­bíl í Tal al-Hawa-hverf­inu í suð­vest­ur­hluta Gaza-borgar í dag.

Palest­ínski Rauði hálf­mán­inn, sem rekur sjúkra­flutn­inga og neyð­ar­þjón­ustu á svæð­inu, sagði að sjúkra­flutn­inga­menn hefðu flutt 13 særða á al-Quds-sjúkra­húsið.

Heim­ildir innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sögðu Al Jazeera að ástand þeirra sem særð­ust í árásinni væri alvar­legt.

„Læknar segja að erfitt sé að bjarga lífi hinna særðu vegna þess að heil­brigð­is­kerf­inu hefur verið rústað eftir margra ára árásir Ísraela og umsátur hers­ins,“ sagði frétta­konan Hind Khoudary, sem greindi frá mál­inu frá Gaza-borg. Hún sagði jafn­framt að tala lát­inna gæti hækkað á næstu klukku­stundum.

Fyrr um dag­inn greindi palest­ínska frétta­stofan Wafa frá því að ísra­elsk árás á íbúð í nágrenni al-Shifa-sjúkra­húss­ins í Gaza-borg hefði orðið að minnsta kosti einni konu að bana.

Annars staðar á Gaza særð­ust fjórir Palest­ínu­menn, þar af tvö börn, þegar ísra­elskur dróni hæfði skjól fyrir fólk sem hafði flúið heim­ili sín í suð­ur­hluta Gaza, sam­kvæmt stað­bundnum heim­ildum sem Wafa vitn­aði í.

Tveir aðrir Palest­ínu­menn særð­ust alvar­lega eftir að ísra­elskar her­sveitir skutu á þá suð­austur af Deir el-Balah í mið­hluta Gaza. Þá bár­ust einnig fregnir af skrið­dreka­skot­hríð Ísraela í Khan Younis í suð­ur­hluta Gaza.

Yfir 1.400 sagðir hafa fallið frá því vopnahlé tók gildi

Heil­brigð­is­ráðu­neytið á Gaza, sem tekur saman upp­lýs­ingar um mann­fall frá sjúkra­húsum víðs vegar um svæðið, sagði í dag­legri upp­færslu sinni á mið­viku­dag að lík að minnsta kosti níu ein­stak­linga hefðu borist á sjúkra­hús síð­ustu 24 klukku­stundir.

Átta þeirra hefðu lát­ist á tíma­bil­inu en ein kona lést af völdum eldri áverka. Samkvæmt ráðu­neyt­inu hefur þá að minnsta kosti 1.431 Palest­ínu­maður látið lífið frá því vopna­hlé Ísraels og Hamas tók gildi í októ­ber síð­ast­liðnum. Þá hafa 5.026 særst, þar af 31 síð­asta sól­ar­hring­inn.

„Það á að vera vopna­hlé á Gaza en ofbeldi ísra­elska hers­ins er enda­laust. Á hverjum degi eru Palest­ínu­menn drepnir og særðir og mann­úð­ar­á­standið versnar,“ sagði Khoudary.

Hún lýsti ástand­inu sem „ógn­vekj­andi“ og sagði íbúa Gaza ótt­ast að fara í mat­vöru­verslun, fylgja börnum sínum í skóla eða ein­fald­lega lifa dag­legu lífi.

Samkvæmt heil­brigð­is­yf­ir­völdum á Gaza hafa alls að minnsta kosti 74.032 Palest­ínu­menn verið drepnir og 175.142 særst frá því stríðið hófst í októ­ber 2023. Þá eru þús­undir enn grafnir undir rústum húsa á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta