Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Hringdi svangur og særður í ömmu sína

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Móðir talin hafa verið í geð­rofi þegar hún réðst á börn sín Mynd: Instragram

Hin 35 ára gamla Taylor Gosnell hefur verið hand­tekin og ákærð fyrir til­raun til mann­dráps og vopna­burð við ofbeld­is­brot, eftir að hafa ráð­ist af miklu offorsi gegn tveimur ungum börnum sínum á heim­ili þeirra í Spart­an­burg County um síð­ustu helgi. Börnin, sem eru þriggja og sex ára gömul, hlutu lífs­hættu­lega áferka í árásinni og liggja nú þungt haldin á sjúkra­húsi.

Voru heima svöng

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu hófst málið þegar sex ára gam­all sonur Gosnell hringdi í ömmu sína til að láta vita að hann og yngra systk­ini sitt væru ein heima og svöng. Við það flýttu amma barn­anna og fyrr­ver­andi kær­asti Gosnell sér á vett­vang og gerðu lög­reglu við­vart.

Lög­reglu­menn sem komu fyrstir á vett­vang lýstu aðkom­unni sem skelfi­legri. Blóð var út um allt hús, sjón­vörp og speglar höfðu verið mölv­aðir og gler­brot lágu á gólfum. Inni á heim­il­inu fund­ust börnin tvö alblóðug með fjölda djúpra stungusára og skurða. Í dóms­mál­inu kom fram að sárin á börn­unum væru svo djúp að sum þeirra næðu inn að beini. Sjöunda umdæm­issak­sókn­ara­emb­ættið greindi frá því að sex ára dreng­ur­inn gæti þurft að gang­ast undir aflimun á fingrum og hugs­an­lega hand­legg vegna alvar­leika áverk­anna.

Börnin voru flutt í skyndi á Prisma Health barna­spít­al­ann í Greenville þar sem þau hafa þegar geng­ist undir aðgerðir og eiga von á frek­ari skurð­að­gerðum. Læknar telja að þau muni lifa árás­ina af.

Andlegt ástand

Taylor Gosnell sneri aftur á vett­vang skömmu eftir að lög­reglu bar að garði. Hún sýndi merki mik­ils and­legs óstöð­ug­leika, tal­aði hratt og full­yrti að hún upp­lifði sýnir og heyrði raddir. Rannsókn lög­reglu á sam­fé­lags­miðlum hennar sýndi að hún hafði birti færslur örfáum klukku­stundum fyrir árás­ina þar sem hún grát­bað fólk um að hætta að hlæja að sér. Sak­sókn­arar telja að hún hafi verið í alvar­legu geð­rofi þegar árásin átti sér stað, en hún er sögð hafa beitt bæði hnífi og hafna­bolta­kylfu. Gosnell var flutt með sjúkra­bíl til geð­mats áður en hún var vistuð í fang­elsi.

Í ljós hefur komið að Gosnell var laus gegn trygg­ingu þegar árásin átti sér stað, en hún var hand­tekin í febr­úar 2024 og ákærð fyrir að stofna lífi barna sinna í hættu og van­rækslu.

Gosnell var neitað um trygg­ingu við fyrstu fyr­ir­töku og verður hún áfram í gæslu­varð­haldi í Spart­an­burg County Detention Center fram að næstu rétt­ar­höldum, sem áætluð að verði þann 12. nóv­em­ber næst­kom­andi. Verði hún fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að 60 ára í fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta