Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“

Björn Brynj­úlfur, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, telur hug­veitan hafa tekið á sig of mikla sök

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“
Björn Brynj­úlfur Björns­son Er fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands Mynd: Viðskiptaráð

Björn Brynj­úlfur Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands, telur að ráðið hafi tekið á sig of mikla sök í kjöl­far banka­hruns­ins árið 2008. Þetta kemur fram í við­tali við Heim­ild­ina þar sem hann ræðir meðal ann­ars gagn­rýni á starf­semi ráðs­ins og lær­dóm­inn af hrun­inu.

Við­skipta­ráð sætti mik­illi gagn­rýni eftir hrunið og var þáttur þess meðal ann­ars tek­inn til umfjöll­unar í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. Gagn­rýnin sneri meðal ann­ars að áhrifum ráðs­ins á stjórn­völd, áherslu á minni reglu­setn­ingu og skýrslum sem unnar voru um íslenska fjár­mála­kerfið fyrir hrun.

Við­skipta­ráð við­ur­kenndi árið 2011 að hafa átt þátt í því ástandi sem skap­að­ist í aðdrag­anda hruns­ins. Björn telur þó að ráðið hafi síðar tekið á sig meiri ábyrgð en efni stóðu til.

„Já, ég myndi segja að við höfum bara lært mikið af hrun­inu eins og aðrir,“ svarar Björn.

Hann bendir á að fall Lehman Brothers og lausa­fjár­þurrð á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum hafi haft víð­tæk áhrif. Íslenska banka­kerfið og þjóð­ar­búið hafi jafn­framt verið mjög skuld­sett þegar áfallið reið yfir.

Björn nefnir sér­stak­lega svo­nefndar Mishkin- og Porter-skýrslur sem Við­skipta­ráð kom að fyrir hrun. Hann telur þær að mörgu leyti hafa verið vand­aðar þótt nið­ur­stöð­urnar hafi reynst of bjart­sýnar.

„Menn í raun­inni töldu þol bank­anna til að stand­ast áföll hafa verið meira en það var og að fjár­mála­kerfið væri traust­ara en svo reynd­ist,“ segir Björn.

Hann telur yfir­lýs­ingu Við­skipta­ráðs frá árinu 2011 bera þess merki að sjálfs­gagn­rýnin eftir hrun hafi gengið of langt. Skýrsl­urnar hafi ekki valdið efna­hags­hrun­inu heldur hafi meðal ann­ars mikil skuld­setn­ing og veik­leikar í fjár­mála­eft­ir­liti vegið þar mun þyngra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi