Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað Magnús Kristjánsson forstjóra Stofnunar atvinnuveganna til fimm ára.
Stofnunin verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Þá færast verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga einnig til hennar. Stofnunin tekur til starfa 1. janúar 2027.
Alls sóttu tólf um embættið en þriggja manna hæfnisnefnd lagði mat á umsækjendur. Magnús mun leiða undirbúning að starfsemi stofnunarinnar, móta skipulag hennar og stýra henni.
Magnús er með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði og MBA-próf frá Háskóla Íslands. Hann var forstjóri Orkusölunnar frá 2008 til 2026 en starfaði áður meðal annars hjá Rarik og TM Software. Hann hefur jafnframt gegnt fjölmörgum stjórnarstörfum, meðal annars hjá Samorku, Sunnlenskri orku og Sjávarorku, auk setu í fulltrúaráði Samtaka atvinnulífsins.































Athugasemdir