Söngkonan Trina Braxton hefur tilkynnt að eiginmaður hennar, Von Scales, sé látinn.
Talsmaður Braxton-fjölskyldunnar sagði við bandaríska fréttamiðilinn TMZ: „Það er okkur þungbært að tilkynna andlát Von Scales, ástkærs eiginmanns Trinu Braxton.“
Talsmaðurinn bætti við: „Fjölskyldan er þakklát fyrir hlýjar hugsanir og bænir en biður jafnframt um friðhelgi einkalífs á þessum erfiðu tímum.“
Heimildarmenn nákomnir fjölskyldunni segja við TMZ að Von hafi látist um klukkan tvö í nótt í Atlanta. Samkvæmt heimildarmönnunum hafði hann glímt við hjartavandamál. Dánarorsök hans hefur ekki verið staðfest.
Trina og Von gengu í hjónaband árið 2019 og var brúðkaupið sýnt í raunveruleikaþáttaröð fjölskyldunnar, The Braxtons en Trina er systir stórsöngkonunnar Toni Braxton.
Hjónabandið var stofnað ári eftir að fyrrverandi eiginmaður Trinu, Gabriel Solis, lést.
Von Scales var 58 ára að aldri.





















Athugasemdir