Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

„Blaut tuska er ekki endi­lega hrein tuska. Hún þarf líka að fá að þorna“

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Radek B. Dudziak Radek komst að áhuga­verðri nið­ur­stöðu Mynd: Aðsend

Radek B. Dudziak gerði nýverið til­raun heima í eld­húsi þar sem hann kann­aði örveru­vöxt á eld­hús­bekk og í tusku sem notuð var við dag­leg þrif. Nið­ur­stöð­urnar komu honum á óvart, en lang­mestur sýni­legur örveru­vöxtur reynd­ist vera í tusk­unni.

Radek, sem er heil­brigð­is­full­trúi hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Norð­ur­lands eystra, greinir frá til­raun­inni í færslu á Facebook-síð­unni Mat­væla­ör­yggi á manna­máli.

Til­raunin fólst í því að hann merkti af ákveð­inn reit á eld­hús­bekknum og lét hann vera óþrif­inn í þrjá daga. Á sama tíma var annar hluti bekks­ins þurrk­aður reglu­lega með vatni, eins og venju­lega.

Við þrifin not­aði hann tusku sem var bleytt, notuð til að þurrka af bekknum og síðan lögð við hlið­ina á vask­inum. Þetta var gert einu til tvisvar á dag í þrjá daga.

Að þeim tíma liðnum tók Radek sýni af óþrifna svæð­inu, þrifna svæð­inu og tusk­unni og setti á rækt­un­ar­skálar til að kanna sýni­legan örveru­vöxt.

Tuskan reyndist hafa langmestan vöxt

Nið­ur­stöð­urnar sýndu mik­inn sýni­legan örveru­vöxt á svæð­inu sem hafði ekki verið þrifið í þrjá daga. Á svæð­inu sem hafði verið þurrkað reglu­lega með vatni var hins vegar mun minni vöxtur.

Það sem vakti mesta athygli Radeks var þó nið­ur­staðan úr sýn­inu sem tekið var af tusk­unni.

„Á skál­inni frá tusk­unni var svo mik­ill og þéttur sýni­legur vöxtur að ein­stakar kólón­íur voru víða orðnar mjög erf­iðar eða ómögu­legar að greina í sundur,“ skrifar hann.

Radek útskýrir að þegar örverur fjölga sér á rækt­un­ar­skál geti þær myndað sýni­legar þyrp­ingar, svo­kall­aðar kólón­íur. Í sýn­inu úr tusk­unni hafi vöxt­ur­inn verið svo mik­ill að þyrp­ing­arnar runnu víða saman.

Hann leggur þó áherslu á að ekki sé hægt að full­yrða um nákvæman fjölda bakt­ería út frá nið­ur­stöð­unum.

Raki skapar hagstæð skilyrði

Radek segir skýr­ing­una meðal ann­ars fel­ast í því að tuskan hafi hald­ist rök milli þrifa.

Ólíkt eld­hús­bekknum, sem þornar til­tölu­lega fljótt, geti tuskur haldið raka lengi. Í trefjum þeirra geti jafn­framt safn­ast upp líf­ræn efni og örverur.

„Raki + tími + nær­ing geta skapað mun hag­stæð­ari aðstæður fyrir ákveðnar örverur en á þurrum fleti,“ skrifar hann.

Hann bendir á að þótt það geti dregið úr óhrein­indum og örverum að þurrka yfir­borð með vatni sé það ekki það sama og að sótt­hreinsa það.

Ef sama raka tuskan sé notuð aftur og aftur án þess að vera þvegin geti hún orðið að stað þar sem örverur lifa af og fjölga sér.

Mikilvægt að þvo tuskur og leyfa þeim að þorna

Radek tekur fram að um ein­falda heim­il­is­til­raun hafi verið að ræða en ekki form­lega vís­inda­rann­sókn. Ekki hafi heldur verið kannað hvort sjúk­dóms­vald­andi bakt­er­íur væru til staðar í sýn­unum.

Nið­ur­stöð­urnar gefi engu að síður til­efni til að huga betur að með­höndlun tuska sem not­aðar eru við eld­hús­þrif.

„Það sem lítur hreint út er ekki endi­lega örveru­fræði­lega laust við örverur. Og það sem við notum til að þrífa getur líka orðið staður þar sem örverur safn­ast saman,“ segir hann.

Radek hvetur fólk til að gæta þess að tuskur séu hreinar, fái að þorna vel milli notk­unar og séu þvegnar eða þeim skipt út reglu­lega.

„Blaut tuska er ekki endi­lega hrein tuska. Hún þarf líka að fá að þorna,“ segir Radek að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi