Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bif­reið um Þjóð­braut og inn á bif­reiða­stæði á Akranesi

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Akranes í allri sinni feg­urð Mynd: Akraneskaupstaður

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands hefur dæmt karl­mann í tólf mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir ítrekuð umferð­ar­laga­brot og ólög­lega áfeng­is­fram­leiðslu. Maðurinn var nú sak­felldur fyrir að aka sviptur öku­rétti í tíunda sinn og undir áhrifum áfengis í sjötta sinn innan ítrek­un­ar­tíma. Dómurinn féll 2. októ­ber.

Maðurinn ók bif­reið um Þjóð­braut og inn á bif­reiða­stæði á Akranesi mið­viku­dag­inn 3. júní síð­ast­lið­inn. Hann var þá þegar sviptur öku­rétti ævi­langt. Í blóð­sýni mæld­ist vín­anda­magn 0,60 pró­mill.

Sama dag stöðv­aði lög­regla ólög­lega áfeng­is­fram­leiðslu hans. Hann hafði fram­leitt 75 lítra af gambra með 18 pró­senta áfeng­is­styrk­leika og sam­tals 20 lítra af landa. Styrk­leiki land­ans var á bil­inu 15 til 91 pró­sent. Þar af voru einn og hálfur lítri með 91 pró­sents áfeng­is­styrk­leika.

Maðurinn hafði jafn­framt átt sér­hæfð áhöld til áfeng­is­eim­ingar án leyfis. Lögregla lagði hald á áfengið og bún­að­inn við rann­sókn máls­ins.

Tvær ákærur voru gefnar út vegna brot­anna og málin sam­einuð við þing­fest­ingu 8. sept­em­ber. Maðurinn mætti fyrir dóm, ját­aði bæði brotin ský­laust og sam­þykkti kröfu ákæru­valds­ins um upp­töku áfengis og bún­aðar.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn til þess að mað­ur­inn hefði ítrekað verið sak­felldur fyrir ölv­un­arakstur og akstur sviptur öku­rétti frá árinu 2015. Í apríl 2023 hlaut hann átta mán­aða fang­els­is­dóm fyrir ölv­un­arakstur í fimmta sinn og akstur sviptur öku­rétti í sjö­unda sinn.

Hann var aftur dæmdur til fang­elsis í sept­em­ber 2024 fyrir akstur sviptur öku­rétti og hlaut sjö mán­aða fang­els­is­dóm vegna sam­bæri­legs brots í sept­em­ber 2025.

Til refsi­lækk­unar var litið til ský­lausrar játn­ingar manns­ins og þess sem fram kom fyrir dómi að hann iðr­að­ist og væri að taka á sínum málum. Vegna saka­fer­ils hans og dóm­venju um ítrekuð umferð­ar­laga­brot þóttu hins vegar ekki efni til að skil­orðs­binda refs­ing­una.

Ævilöng svipt­ing öku­réttar var áréttuð. Áfengið, þrjár fötur, tvö brugg­tæki, tvær sam­fastar fötur, þrír áfeng­is­mælar og tveir pokar af kolasíum voru gerð upp­tæk til rík­is­sjóðs. Manninum var einnig gert að greiða 249.782 krónur í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi