Í dag gerði Rússland árás á Kramatorsk, borg í fremstu víglínu í Donetsk-héraði í Úkraínu. Talið er að stýrisprengju hafi verið beitt í árásinni.
Sprengjan lenti á tveimur strætisvögnum sem voru á leið með farþega. Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa 33 manns látið lífið og 18 særst.
Lík voru á víð og dreif um alla götuna eftir árásina.
Í kjölfar árásarinnar stöðvuðu yfirvöld almenningssamgöngur í Kramatorsk og nágrannaborginni Slovjansk. Þetta eru tvær stærstu borgir Donbas-svæðisins sem eru enn undir stjórn Úkraínu.
Rússneski útlagamiðillinn Meduza birtir ljósmyndir af vettvangi eftir árásina á Kramatorsk. Lesendum er bent á að sumar myndanna eru afar átakanlegar.































Athugasemdir