Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París

Eiríkur segir ójöfnuð og von­leysi liggja að baki ólg­unni í Frakk­landi

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París
Frá mót­mæl­unum í París Eiríkur tók meira eftir frið­sömum mót­mælum en óeirðum Mynd: Facebook

Eiríkur Rögn­valds­son, upp­gjafa­pró­fessor í íslenskri mál­fræði við Háskóla Íslands, segir að þrátt fyrir fréttir af miklum óeirðum í París hafi dag­legt líf í borg­inni að mestu gengið sinn vana­gang þegar hann dvaldi þar nýverið. Hann segir frið­sam­leg mót­mæli hafa verið upp­haf atburð­anna en telur að ýmis öfga­öfl hafi síðar nýtt sér óánægju fólks til að skapa glund­roða.

Eiríkur greinir frá reynslu sinni í Facebook-færslu eftir heim­komu frá París. Hann og eig­in­kona hans dvöldu í ell­efta hverfi borg­ar­innar, skammt frá þeim stöðum þar sem óeirð­irnar voru sagðar hafa verið mestar.

„Ég get ekki sagt að við höfum orðið mikið vör við læti,“ skrifar Eiríkur.

Hann segir þau vissu­lega hafa séð frið­sam­legan hóp fólks með kröfu­spjöld á götum úti, slag­orð á veggjum og styttum, brotna búð­ar­glugga og versl­anir þar sem gluggar höfðu verið negldir fyrir til að verj­ast skemmdum. Þá hafi þau einnig séð lestir lög­reglu­bíla með sírenur í gangi.

Þrátt fyrir þetta hafi lífið í borg­inni að mestu gengið sinn vana­gang.

Segir friðsamleg mótmæli hafa verið upphafið

Eiríkur segir að upp­haf ólg­un­innar hafi verið frið­sam­leg og eðli­leg mót­mæli fram­halds­skóla­nema vegna ófull­nægj­andi aðstæðna í skólum lands­ins.

Að sögn hans hafa nem­end­urnir meðal ann­ars mót­mælt lélegu ástandi skóla­hús­næðis, of fjöl­mennum bekkjum og skorti á full­nægj­andi náms­gögnum. Hann segir jafn­framt að ráða­menn hafi tekið undir hluta gagn­rýn­innar.

Mótmælin hafi í fyrstu einkum falist í því að skólum var lokað, en háskóla­nemar hafi síðar tekið þátt til stuðn­ings fram­halds­skóla­nemunum. Þeir þekki sjálfir aðstæður í fram­halds­skólum, enda nýlega lokið námi þar.

Að mati Eiríks hafi hins vegar ýmsir hópar síðar blandað sér í mót­mælin með öðrum mark­mið en að bæta aðstæður í skól­unum.

„En síðan ger­ist það sem vill ger­ast við slíkar aðstæður, að alls kyns hópar hoppa á vagn­inn. Þessum hópum er hund­sama um ástandið í skól­unum, mark­mið þeirra er bara að skapa glund­roða,“ skrifar hann.

Eiríkur seg­ist ekki vita hvort þar hafi verið um að ræða hægri- eða vinstriöfga­hópa, anar­kista eða aðra hópa.

Segir ekkert hafa bent til sérstakrar aðkomu innflytjenda

Í færsl­unni segir Eiríkur að hann hafi hvorki séð né heyrt neitt sem benti til þess að inn­flytj­endur hefðu verið sér­stakir for­sprakkar óeirð­anna.

Hann bendir þó á að inn­flytj­endur séu fjöl­mennir í Frakk­landi og að ein­hverjir þeirra taki að sjálf­sögðu þátt í óeirðum, rétt eins og aðrir sam­fé­lags­hópar.

Eiríkur telur að skýra þurfi ólgu í sam­fé­lag­inu með því að horfa til und­ir­liggj­andi félags­legra aðstæðna, fremur en að beina athygl­inni sér­stak­lega að upp­runa fólks.

„En und­ir­rótin að ólg­unni er fyrst og fremst ójöfn­uður og von­leysi margra sem sjá ekki fram á að eiga sér neina fram­tíð,“ skrifar hann.

Hann segir auð­velt að virkja óánægju þeirra sem telja sig hafa orðið undir í sam­fé­lag­inu og að öfga­öfl nýti sér slíka stöðu.

Telur samfélagsmiðla og fjölmiðla geta grafið undan mótmælum

Eiríkur segir sam­fé­lags­miðla hafa auð­veldað öflum að ná til fólks og æsa það upp. Jafn­framt séu sam­fé­lags­miðlar og hefð­bundnir fjöl­miðlar nýttir með mark­vissum hætti til að koma óorði á mót­mæl­endur og grafa undan stuðn­ingi við frið­sam­leg mót­mæli.

Hann telur þá þróun áhyggju­efni, enda séu frið­sam­leg mót­mæli eðli­legur þáttur í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi.

„Það er ugg­væn­legt,“ skrifar Eiríkur í lok færsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi