Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju

Donald Trump end­ur­tekur lyga­þvælu um upp­hafs­daga inn­rásar Rúss­lands inn í Úkraínu.

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á ekk­ert alltaf í góðu sam­bandi við sann­leik­ann Mynd: Shutterstock

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur ítrekað lofað að binda enda á stríð Rúss­lands og Úkraínu innan sól­ar­hrings, þótt frið­ar­við­ræður hafi enn skilað litlum raun­veru­legum árangri. Hann rifjar jafn­framt reglu­lega upp atvik frá fyrstu dögum alls­herj­ar­inn­rásar Rússa í Úkraínu árið 2022, en breytir smá­at­riðum sög­unnar í hvert sinn. Hún fjallar um rúss­neska skrið­dreka sem stefndu á Kænugarð en fest­ust í leðju.

Í sam­tali við frétta­menn í Hvíta hús­inu 20. októ­ber sagði Trump sög­una enn á ný, að þessu sinni með sér­stakri áherslu á rúss­neskan hers­höfð­ingja sem hann sagði hafa tekið afdrifa­ríka ranga ákvörðun.

„Þetta var heimskur hers­höfð­ingi hjá Rússum, mjög heimskur maður. Þeir voru með þús­und skrið­dreka á leið eftir stein­steyptum þjóð­vegi. Þeir hefðu verið komnir inn í Úkraínu á fjórum klukku­stundum, á hámarks­hraða skrið­drek­anna, sem er nákvæm­lega 48 mílur á klukku­stund. Ekkert hefði getað stöðvað þá. Stríðinu hefði verið lokið á einum degi,“ sagði Trump.

Hann hélt áfram og sagði hers­höfð­ingj­ann hafa ákveðið að beygja út af veg­inum, aka yfir land­bún­að­ar­land og síðan beygja aftur í átt að Kænu­garði, í stað þess að halda sig á góðum stein­steyptum þjóð­veg­inum.

„Þetta hefði tekið þrjár og hálfa til fjórar klukku­stundir og stríð­inu hefði verið lokið. En hann end­aði á því að fest­ast í leðj­unni,“ sagði Trump. Hann sagð­ist ekki vita hver hers­höfð­ing­inn væri og efað­ist um að hann væri enn á lífi.

Úkraínumenn stöðvuðu sóknina

BBC Russia kann­aði full­yrð­ingar Trumps og segir að Alex­ander Tsjaíkó, hers­höfð­ingi í rúss­neska hernum, hafi stýrt sókn Rússa í átt að Kænu­garði frá Hvíta-Rúss­landi í febr­úar 2022. Mis­heppnuð sókn Rússa hafi hins vegar ekki stafað af því að hann hefði ákveðið að aka skrið­drek­unum út af veg­inum.

Úkra­ínskar her­sveitir stöðv­uðu fram­rás Rússa með mark­vissum aðgerðum. Þann 26. febr­úar 2022 sprengdu úkra­ínskir her­menn brú yfir Irpin-fljót í útjaðri höf­uð­borg­ar­innar. Þegar rúss­neskar her­sveitir reyndu að kom­ast fram hjá hindr­un­inni eyðilögðu Úkra­ínu­menn Kozarovychi-stífl­una. Þeir eyðilögðu einnig fylk­ingu rúss­neskra bryn­var­inna öku­tækja í Bucha.

Þegar mann­fall Rússa jókst sendi rúss­neska her­stjórnin liðs­auka frá Hvíta-Rúss­landi.

Eftir að sóknin mistókst var Tsjaíkó leystur frá stjórn her­sveit­anna og sendur til Sýrlands til að stýra rúss­neska her­lið­inu þar. Hann gegndi því hlut­verki til júní 2025, meðal ann­ars þegar valda­rán neyddi Bashar al-Assad Sýr­lands­for­seta til að flýja til Moskvu.

Ferill hershöfðingjans hélt áfram upp á við

Samkvæmt BBC Russia hafði mis­heppn­aða sóknin ekki nei­kvæð áhrif á starfs­feril Tsjaíkós. Hann sneri aftur til Moskvu, varð aðstoð­ar­for­stjóri her­ráðs Rúss­lands og var síðar skip­aður yfir­maður geim- og loft­varna­sveita rúss­neska hers­ins.

Í ágúst 2026 var Tsjaíkó hins vegar nærri því að láta lífið þegar spreng­ing varð nærri Balzi Rossi-veit­inga­staðnum í Moskvu. Þar var hann að halda upp á 55 ára afmæli sitt og nýja stöðu.

Fimm manns lét­ust í spreng­ing­unni, þar á meðal tengda­sonur hers­höfð­ingj­ans, og 19 til við­bótar særð­ust. Tsjaíkó slapp ómeiddur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta