Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

„Jason, ef þess þyrfti, myndu þeir stökkva fyrir byssu­kúlu fyrir þig“

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Jason Alex­ander Jason Alex­ander rifjar upp gest­risni Palest­ínu­manna Mynd: JEMAL COUNTESS / GETTY IMAGES VIA AFP

Banda­ríski leik­ar­inn Jason Alex­ander, sem er þekkt­astur fyrir hlut­verk George Costanza í sjón­varps­þátt­unum Seinfeld, rifj­aði nýlega upp hvernig tíu palest­ínskir menn vernd­uðu hann í hern­að­ar­að­gerð Ísra­els­manna í Ramallah á Vest­ur­bakk­anum. Hann segir reynsl­una hafa sýnt sér styrk palest­ínskrar gest­risni og sam­stöðu.

Alex­ander sagði frá atvik­inu í hlað­varp­inu Build or Break, þar sem hann ræddi við frum­kvöðul­inn Daniel Lubetzky. Hann heim­sótti hernumda Vest­ur­bakk­ann árið 2004 í tengslum við frið­ar­verk­efnið OneVoice, sem mið­aði að því að hvetja Ísraela og Palest­ínu­menn til að styðja samn­inga­við­ræður um tveggja ríkja lausn.

Í heim­sókn­inni ræddi Alex­ander við palest­ínskan mann að nafni Mohammed og spurði hann hvort hann, sem amer­ískur gyð­ingur væri öruggur í Palest­ínu. Maðurinn útskýrði fyrir honum mik­il­vægi þess í íslam að vernda gest sem hefði verið boðið heim.

„Mesta van­virða sem trú­aður múslimi getur sýnt er að leyfa gesti, sem honum hefur verið boðið, að verða fyrir skaða,“ sagði Mohammed, sam­kvæmt frá­sögn Alex­and­ers.

Mohammed bætti við að gest­gjafar leik­ar­ans væru til­búnir að leggja líf sitt í hættu til að vernda hann.

„Jason, ef þess þyrfti, myndu þeir stökkva fyrir byssu­kúlu fyrir þig,“ sagði hann.

Alex­ander sagð­ist hafa áttað sig á alvöru orð­anna þegar tíu palest­ínskir menn söfn­uð­ust í kringum hann eftir að skot­hvellir heyrð­ust í miðri hern­að­ar­að­gerð Ísra­els­manna.

„Ég man að þessir tíu menn við borðið umkringdu mig. Ég hugs­aði: „Guð minn góður, hann var ekki að grín­ast. Þeir ætla ekki að leyfa að mér verði gert mein,““ sagði leik­ar­inn.

Ólík afstaða fyrrverandi meðleikara

Frásögn Alex­and­ers hefur einnig vakið athygli vegna opin­bers stuðn­ings hans við Ísrael á fyrri árum. Hann tók meðal ann­ars þátt í fjár­öflun fyrir sam­tökin Friends of the Israel Defense Forces (FIDF), sem styðja ísra­elska her­menn. Árið 2012 var hann kynnir á fjár­öfl­un­ar­kvöldi sam­tak­anna í Los Angeles, þar sem meira en 14 millj­ónum Banda­ríkja­dala var safnað til stuðn­ings her­mönnum og vel­ferðar- og mennta­verk­efnum.

Sagan hefur jafn­framt beint sjónum að ólíkri afstöðu Alex­and­ers og fyrr­ver­andi með­leik­ara hans úr Seinfeld, Jerry Seinfeld.

Seinfeld hefur lýst yfir opin­berum stuðn­ingi við Ísrael í stríð­inu á Gaza. Í októ­ber 2026 brást hann háðs­lega við mót­mæl­endum sem gagn­rýndu Ísrael á skemmtun hans í Chicago. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Ég er ras­isti, þetta eru þjóð­ar­morð og ég er styð það,“ áður en hann dans­aði á svið­inu. Hann sagði einnig einum mót­mæl­anda að hann myndi senda andi­virði miða hans til Ísraels.

Frásögn Alex­and­ers snýst hins vegar um per­sónu­lega reynslu hans af Palest­ínu­mönnum og þá vernd sem hann segir þá hafa veitt sér. Í við­tali við The Forward árið 2004 lýsti hann einnig hlý­legum við­tökum Palest­ínu­manna og sagði að bein sam­skipti við íbúa Ramallah hefðu breytt fyr­ir­fram­gefnum hug­myndum hans um borg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta