Mannanafnanefnd hefur lokið afgreiðslu fjölda nýrra nafna og fengu langflestar beiðnirnar grænt ljós. Tvö eiginnöfn voru þó ekki samþykkt.
Meðal þeirra nafna sem nú hafa verið samþykkt er Aragorn, sem skráð verður sem karlmannsnafn. Þá var Enzo einnig samþykkt sem karlmannsnafn.
Nefndin samþykkti nokkur ný kvenmannsnöfn. Þau eru Ksenía, Ragndís, Auróra, Lyngrós, Flórentína, Elisa og Bessý.
Tvö ný nöfn voru jafnframt samþykkt sem kynhlutlaus. Það eru nöfnin Frill og Traust.
Mannanafnanefnd féllst einnig á tvær beiðnir um aðlögun kenninafna. Föðurnafnið Tadeusson var samþykkt, auk Lúðvíksdóttir.
Ekki fengu þó allar beiðnir náð fyrir augum nefndarinnar. Karlmannsnafninu Ceasar var hafnað og sömuleiðis kvenmannsnafninu Ýsafold.





















Athugasemdir