Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember á síðasta ári. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag.
Vísir greinir frá því að Héraðssaksóknari hafi höfðað málið, sem kennt hefur verið við Landsbankann. Grunur leikur á að hundruð milljóna króna hafi verið sviknar út úr bönkum með því að nýta galla í kerfum Reiknistofu bankanna.
Greint var frá því í fyrra að um 400 milljónir króna hefðu verið sviknar út úr Landsbankanum og um tíu milljónir úr Arion banka. Þá höfðu yfirvöld kyrrsett um 250 milljónir króna og unnið var að því að endurheimta meira af fjármununum.





















Athugasemdir