Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Móðir barns með fjöl­þættan og flók­inn vanda er þakk­lát Klettabæ

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Heiða Ósk Þor­steins­dóttir Heiða Ósk er afar þakk­lát Klettabæ Mynd: Facebook

Aðal­heiður Ósk Þor­steins­dóttir segir Klettabæ hafa reynst syni sínum og fjöl­skyld­unni ómet­an­legt úrræði eftir erf­iða reynslu af annarri þjón­ustu fyrir börn með flók­inn vanda. Hún tekur undir mik­il­vægi eft­ir­lits með einka­reknum úrræðum en segir mik­il­vægt að hlusta einnig á fjöl­skyldur sem hafi fundið þar öryggi og stuðn­ing.

Aðal­heiður Ósk Þor­steins­dóttir gagn­rýnir hluta umfjöll­unar Kveiks um Klettabæ í færslu á Facebook. Hún segir úrræðið hafa gjör­breytt lífi sonar síns og fjöl­skyld­unnar eftir að þau höfðu gengið í gegnum erf­iða reynslu af annarri þjón­ustu.

„Því Kletta­bær er úrræðið sem bjarg­aði barn­inu mínu og fjöl­skyld­unni minni,“ skrifar Aðal­heiður, sem segir erfitt að hafa horft á þátt­inn og hlustað á fyrr­ver­andi starfs­menn lýsa því að börn á Klettabæ væru í geymslu, án krafna eða fram­tíð­ar­sýnar.

Hún tekur þó fram að hún sé sam­mála því að eft­ir­lit með einka­reknum úrræðum þurfi að vera öfl­ugt og að hlusta verði á börn, fjöl­skyldur og starfs­fólk þegar eitt­hvað fer úrskeiðis.

„Ég veit sjálf hversu mik­il­vægt það er að fjalla um það sem miður fer í úrræðum fyrir börn og fatlað fólk. Ég veit líka hversu hræði­legar afleið­ing­arnar geta verið þegar börn fá ekki þá vernd, umönnun og stuðn­ing sem þau þurfa.“

Aðal­heiður segir reynslu sína af Klettabæ hins vegar vera allt aðra en þá mynd sem hún segir hafa verið dregna upp í þætt­inum.

„Barnið mitt er ekki í geymslu. Barnið mitt fær stuðn­ing allan sól­ar­hring­inn. Tveir starfs­menn eru með honum og þegar eitt­hvað kemur upp er brugð­ist við og reynt að leysa það af skyn­semi.“

Hún segir að erf­iðar aðstæður geti vissu­lega komið upp en að það skipti mestu máli hvernig tekið sé á þeim. Í hennar til­felli hafi Kletta­bær ekki brugð­ist sér og fjöl­skyld­unni.

Sonur hennar fái umönnun, öryggi og stuðn­ing við hæfi og stundi nám í skóla Kletta­bæjar.

Segir fjölskylduna hafa orðið fyrir ofbeldi í öðru úrræði

Í færsl­unni lýsir Aðal­heiður einnig reynslu fjöl­skyld­unnar af einka­rekna úrræð­inu Heil­indum, þar sem sonur hennar dvaldi áður en hann kom í Klettabæ.

Hún segir Barna­vernd Hafn­ar­fjarðar hafa mælt með Heil­indum. Á þeim tíma hafi úrræðið verið nýtt og sonur hennar fyrsta barnið þar með jafn flók­inn vanda.

Aðal­heiður segir fljót­lega hafa komið í ljós að starfs­fólkið vissi ekki hvernig mæta ætti þörfum hans. Hún heldur því fram að sonur hennar hafi orðið fyrir and­legu og lík­am­legu ofbeldi í úrræð­inu og að fjöl­skyldan hafi einnig orðið fyrir and­legu ofbeldi.

„Fötin hans voru rifin utan af honum, hann mæld­ist með nær­ing­ar­skort, lyfin hans týnd­ust ítrekað og það gleymd­ist að gefa honum lyfin. Hann var ekki keyrður í sál­fræði­tíma, vinnu og fleira,“ skrifar hún.

Hún lýsir jafn­framt aðstæðum sem hún segir hafa verið óvið­un­andi og sam­skiptum við eig­anda úrræð­is­ins sem hún telur hafa verið alvar­lega ámæl­is­verð.

Aðal­heiður segir Barna­vernd Hafn­ar­fjarðar síðar hafa rift samn­ingi við Heilindi. Hún spyr þó hvort barna­verndin hafi hætt að kaupa þjón­ustu af úrræð­inu í kjöl­far þeirrar reynslu sem hún lýsir.

„Loksins gat fjölskyldan andað“

Aðal­heiður segir fjöl­skyld­una loks hafa kom­ist í Klettabæ fyrir tveimur árum. Þá hafi aðstæður batnað til muna og fjöl­skyldan fengið þann stuðn­ing sem hún þurfti.

„Loksins fékk barnið mitt og fjöl­skyldan öll þann stuðn­ing sem við þurftum. Loksins gat mömmu­hjartað mitt róast við að vita af barn­inu mínu í öruggu umhverfi.“

Hún segir tengsl og sam­skipti son­ar­ins við fjöl­skyld­una aldrei hafa verið betri og að honum líði vel. Hann eigi öruggt heim­ili bæði hjá fjöl­skyld­unni og í Klettabæ.

Aðal­heiður segir jafn­framt að engri móður sé auð­velt að horfast í augu við að geta ekki haft barnið sitt heima. Sonur hennar þurfi meiri stuðn­ing og umönnun en hún geti veitt honum sjálf, sam­hliða því að tryggja öryggi allrar fjöl­skyld­unnar.

Baráttan heldur áfram eftir 18 ára afmælið

Í lok færsl­unnar segir Aðal­heiður að síð­ustu vikur hafi verið þungar. Sonur hennar hafi orðið 18 ára fyrir nokkrum dögum og hún sé enn á ný að berj­ast fyrir því að hann fái nauð­syn­legan stuðn­ing.

Hún seg­ist ekki geta farið nánar út í stöð­una vegna yfir­stand­andi lög­fræði­legra mála, en hafi barist fyrir syni sínum frá því hann var lít­ill drengur.

Aðal­heiður segir mik­il­vægt að hægt sé að gagn­rýna einka­rekin úrræði og kalla eftir öfl­ugra eft­ir­liti án þess að horft sé fram hjá reynslu fjöl­skyldna sem hafi fundið þar lausn.

„Það þarf að vera hægt að ræða gagn­rýni á einka­rekin úrræði og kalla eftir betra eft­ir­liti. En það þarf líka að hlusta á fjöl­skyldur sem hafa loks­ins fundið úrræði sem virkar.“

Hún lýkur færsl­unni með því að ítreka að sonur hennar sé ekki í geymslu heldur á heim­ili þar sem hann fái stuðn­ing, umönnun og öryggi.

„Ég og aðrir lang­þreyttir for­eldrar eigum ekki að þurfa að berj­ast ítrekað fyrir til­veru og vel­ferð barn­anna okkar.“

Aðal­heiður þakkar að lokum Klettabæ fyrir að vera hluta af fjöl­skyldu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi