Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Við rann­sókn máls­ins fund­ust bensín og leifar af bens­íni í skóm

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: Víkingur

Þrír menn hafa verið dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir aðild að því að kveikja í Tesla Model 3 bif­reið í Reykja­vík í ágúst árið 2023. Annar eig­enda bif­reið­ar­innar var á þeim tíma rann­sókn­ar­lög­reglu­maður í fíkni­efna­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Bif­reiðin var metin á rúmar fimm millj­ónir króna og eyði­lagð­ist í eld­inum.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm í mál­inu 27. októ­ber. Menn­irnir, Gabriel A. Guerrero Nunez, Luhay Leonardo Channan Nasser og Adham Abu Zer, voru ákærðir fyrir stór­felld eigna­spjöll.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn taldi strax að íkveikjan gæti tengst starfi hennar. Hún hafði áður fengið hót­anir vegna starfa sinna og nafn­greindi ein­stak­linga sem hún taldi mögu­lega tengj­ast verkn­að­inum. Málið var því framan af meðal ann­ars rann­sakað sem mögu­legt brot gegn vald­stjórn­inni.

Ekki var hins vegar talið sannað að menn­irnir þrír hefðu vitað að lög­reglu­maður ætti bif­reið­ina og voru þeir því ekki ákærðir fyrir brot gegn vald­stjórn­inni.

Allir neituu þeir sök.

Átti að fá 100 þúsund fyrir verkið

Samkvæmt ákæru átti Luhay að fá 100 þús­und krónur fyrir verkið. Hann reyndi fyrst að kveikja í Teslunni um nótt­ina 17. ágúst en án árang­urs. Síðar sama morgun sneri hann aftur ásamt Gabriel. Dómurinn taldi sannað að Gabriel hefði þá lagt eld að bif­reið­inni en Adham hefði skipu­lagt og und­ir­búið skemmd­ar­verkið.

Við rann­sókn máls­ins fund­ust bensín og leifar af bens­íni í skóm Gabriel og Luhay. Símagögn og önnur raf­ræn gögn voru einnig meðal sönn­un­ar­gagna, þar á meðal sam­skipti um hvíta Teslu, mynd af bens­ín­brúsa og mynd­skeið þar sem bif­reiðin sást.

Allir fengu skilorðsbundna dóma

Dómurinn taldi hafið yfir skyn­sam­legan vafa að menn­irnir hefðu haft verk­skipta aðild að brot­inu. Gabriel og Luhay voru dæmdir í átta mán­aða fang­elsi hvor og Adham í sex mán­uði. Refs­ing­arnar eru skil­orðs­bundnar til þriggja ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina