Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

Var fluttur með sjúkra­bíl á sjúkra­hús

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá
Sjóvá fánar Mynd: Sjóvá

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur við­ur­kennt skaða­bóta­skyldu Sjóvár vegna vinnu­slyss sem starfs­maður útgerð­ar­fé­lags­ins Vísis varð fyrir í mars árið 2023. Maðurinn slas­að­ist þegar hann féll við vinnu við sprautu­sölt­un­ar­vél í vinnslu­sal fyr­ir­tæk­is­ins en dóm­ur­inn var birtur fyrr í októ­ber.

Starfs­mað­ur­inn hafði starfað við salt­fisksvinnslu hjá Vísi um ára­bil. Hann var að stíga niður af palli við vél­ina þegar hann féll og slas­að­ist. Í kjöl­farið var hann fluttur með sjúkra­bíl á sjúkra­hús þar sem hann greind­ist með hásin­ar­slit. Síðar voru var­an­legar afleið­ingar slyss­ins metnar til fimm stiga miska.

Maðurinn taldi slysið mega rekja til ófull­nægj­andi örygg­is­að­stæðna. Hann hélt því meðal ann­ars fram að þrepið hefði verið sleipt vegna slors og bleytu og að hand­rið hefði vantað. Sjóvá hafn­aði hins vegar bóta­skyldu og taldi ósannað að slysið mætti rekja til sak­næmrar hátt­semi vinnu­veit­and­ans.

Dómurinn taldi að tveggja þrepa trappan sem mað­ur­inn not­aði hefði ekki verið eins og best yrði á kosið. Efra þrepið var talið afar þröngt og neðra þrepið styttra, þannig að mögu­legt var að stíga fram hjá því. Handrið hafði jafn­framt verið sett upp eftir slysið.

Nið­ur­staða dóms­ins var að aðstæður við tröpp­una hefðu falið í sér ann­marka sem jafna mætti til gáleysis af hálfu vinnu­veit­and­ans. Sjóvá var því talið bóta­skylt úr ábyrgð­ar­trygg­ingu Vísis vegna lík­ams­tjóns manns­ins.

Sjóvá var jafn­framt gert að greiða rúmar 2,3 millj­ónir króna í máls­kostnað, sem rennur til rík­is­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina