Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir

„Það eru ansi kaldar kveðjur“

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: BHJ

Kári Sig­urðs­son, for­maður Sameykis, og Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, gagn­rýna harð­lega mál­flutn­ing Hildar Björns­dóttur borg­ar­stjóra um upp­sagnir og hag­ræð­ing­ar­að­gerðir Reykja­vík­ur­borgar. Þau segja fjöl­margar stað­hæf­ingar hennar ekki stand­ast skoðun.

Þetta kemur fram í grein þeirra sem birt­ist í dag á Vísi. Þar fjalla þau meðal ann­ars um þrjár upp­sagn­ar­hrinur hjá borg­inni sem sagðar eru fela í sér nið­ur­lagn­ingu 130 stöðu­gilda.

Þau benda á að Hildur hafi sagt að hvergi hafi verið bakkað með upp­sagn­irnar og staðið hafi verið við þær upp­sagnir sem stefnt var að. Kári og Sonja segja það ekki rétt og vísa til upp­lýs­inga frá mannauðs­sviði borg­ar­innar um að sjö ein­stak­lingum hafi verið boðið starf sitt aftur þótt það hafi ekki verið ráð­gert þegar þeim var sagt upp.

Þau gagn­rýna einnig mark­mið borg­ar­innar um að hlut­fall stöðu­gilda í mið­lægri þjón­ustu verði 7,5 pró­sent. Segja þau hlut­fallið póli­tískt við­mið en ekki fræði­legan mæli­kvarða. Vísa þau meðal ann­ars til norskrar rann­sóknar á 300 sveit­ar­fé­lögum þar sem starfs­fólk í stjórn­sýslu var að með­al­tali 13,3 pró­sent af heild­ar­fjölda starfs­fólks.

Ummæli Hildar um veik­inda­fjar­vistir og mögu­lega mis­notkun veik­inda­réttar sæta einnig harðri gagn­rýni. Samkvæmt tölum sem þau vísa til var veik­inda­hlut­fall á síð­asta ári um 7,3 pró­sent á Land­spít­ala og í Hafn­ar­firði, ríf­lega sjö pró­sent í Reykja­vík og Kópavogi og tæp­lega 5,9 pró­sent á Sel­tjarn­ar­nesi.

„Stað­hæf­ing um að fólk sé að mis­nota rétt sinn til veik­inda­launa án nokk­urra gagna eða þekk­ingar sem renna stoðum undir hana er alvar­leg,“ skrifa þau.

Þau draga jafn­framt í efa að nægi­legar grein­ingar liggi að baki upp­sögn­unum. Rúmlega hund­rað dögum eftir fyrstu upp­sagnir hafi borgin ekki svarað helm­ingi beiðna Sameykis um rök­stuðn­ing né afhent grein­ingar eða gögn um und­ir­bún­ing þeirra.

Reykja­vík­ur­borg hefur sagt að nið­ur­lagn­ing 130 stöðu­gilda skili um 2,3 millj­arða króna hag­ræð­ingu á árs­grund­velli. Kári og Sonja telja óljóst hvort tekið hafi verið til­lit til kostn­aðar sem geti komið á móti, meðal ann­ars vegna yfir­vinnu og útvist­unar verk­efna.

Þau hafna jafn­framt þeirri full­yrð­ingu að borg­ar­búar muni ekki finna fyrir breyt­ing­unum. Minni stoð­þjón­usta geti að þeirra mati aukið álag á fram­línu­starfs­fólk, lengt bið­tíma og haft áhrif á gæði þjón­ust­unnar.

„Það eru ansi kaldar kveðjur að gera meinta mis­notkun á veik­inda­rétti að umræðu­efni við þessar aðstæður,“ skrifa Kári og Sonja.

Þau segja Hildi ekki hafa lagt fram gögn sem sýni með skýrum hætti hver áhrif fækk­unar starfs­fólks verði eða hverjir taki við verk­efnum þeirra sem missa störfin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi