InnlentNöfn fólksins sem lést í flugslysi á Austurlandi á sunnudag11. júlí 2023 Lögreglan á Austurlandi hefur birt nöfn þeirra sem létust í flugslysi við reglulegar hreindýratalningar síðastliðinn sunnudag. Hin látnu hétu Fríða Jóhannesdóttir, fædd 1982, spendýrafræðingur, Kristján Orri Magnússon, fæddur árið 1982, flugmaður og Skarphéðinn G. Þórisson, fæddur árið 1954, líffræðingur. Lögregla vekur athygli á minningarstund sem haldin verður í Egilsstaðakirkju í dag klukkan 18. Hún minnir og á samráðshóp almannavarna um...
InnlentMagnað myndband: Í návígi við eldgosið11. júlí 2023 Magnað myndband af eldgosinu við Litla Hrút. Tekið af Guðjóni Guðjónssyni.
InnlentFarþegar flugvélarinnar voru vísindamenn sem voru við rannsóknir11. júlí 2023 Farþegar flugvélarinnar sem fórst á sunnudag voru vísindamenn við hreindýratalningar. DV greindi frá. Vélin fannst eftir tveggja klukkutíma leit á sunnudagskvöld en um borð voru tveir farþegar og flugmaður. Allir létu þeir lífið. Lögreglan á Austurlandi segir rannsókn á slysstað vera lokið en búið að er að flytja vélina á höfuðborgarsvæðið til frekari rannsókna.
InnlentVegir áfram lokaðir: „Einhver reitingur sem mætti í morgun“11. júlí 2023 Fólk hefur mikinn áhuga á eldgosinu og skal engan undra. Yfirvöld biðja fólk hins vegar um að virða þau mörk sem hafa verið sett í kringum svæðið. „Það var einhver reitingur sem mætti í morgun og hélt að við værum að fara opna þessa leið. Lögreglumenn greiddu úr því. Það er búið að auglýsta þetta nokkuð vel,“ sagði Gunnar Schram,...
InnlentStysta leiðin að gosinu er frá Höskuldarvöllum11. júlí 2023 Stysta leiðin að gosinu í Litla-Hrút er að ganga frá Höskuldarvöllum og áleiðis að Keili. Frá upphafsstaðnum að áfangastað við gosið eru um fimm kílómetrar. Slóði er frá Oddafelli, þar sem gangan hefst, að Keili. Eftir að komið er til móts við Keili er gengið um úfið land, framhjá Litla-Keili, til að komast að gosinu við Litla-Hrút. Viðbúið er að...
InnlentOfurhugar og yfirvöld: „Þetta endar með slysi!“11. júlí 2023 Eldgosið er hafið og sitt sýnist hverjum. Þjóðin er ennþá að melta tilfinningar sínar gagnvart hrauninu. Sumir spá að þetta muni auka fjölda ferðmanna, aðrir hafa áhyggjur að komast ekki í flug til útlanda. Fólk hefur áhyggjur af ofurhugum sem hætta sér nálægt gosinu meðan aðrir vilja geta gengið að því í friði. Þjóðin hefur ýmsar pælingar eins og sést...
SlúðurSvandís sögð svikul11. júlí 2023 Smábátamenn eru ævareiðir vegna þess að Svandís Svavarsdóttir, ráðherra sjávarútvegsmála, hefur hafnað því að auka við kvóta strandveiðanna og tryggja þannig að ekki verði klippt á veiðarnar í þessari viku, næstum mánuði fyrr en áður hefur gerst. Hún er sögð svíkja sjómennina. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, hefur skorað á ráðherrann að breyta fyrri ákvörðun um að stöðva veiðarnar. Minnt...
InnlentHættulegt gasið læðist um Reykjanes: Fólki ráðlagt að sofa við lokaða glugga og vera varkárt11. júlí 2023 Gasmengun á Reykjanesi hefur mælst hækkandi frá því í gærkvöld þegar gosið við Litla Hrút hófst Undir morgun hafði mengun í Njarðvík aukist um allt að 30 prósent. Loftgæðin sem mældust vera um 6 í gærkvöld fóru upp í 8,1 undir morgun. Fólk á svæðinu hefur verið ráðlagt að hafa glugga lokaða og slökkt á loftræstingu. Viðkvæmu fólki er ráðlagt...
InnlentSkemmdarvargur á Seltjarnarnesi11. júlí 2023 Skemmdarvargur lék lausum hala á Seltjarnarnesi í gærkvöld. Óskað var aðstoðar lögreglunnar vegna framferðis mannsins og vegna eignaspjalla. Skemmdarvargurinn var handtekinn og reyndist vera viti sínu fjær vegna neyslu. Hann var læstur inni í fangaklefa þar sem hann verður þar til af honum bráir. Ökumaður handtekinn í miðborginni, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Hann var látinn...
InnlentFimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.10. júlí 2023 Árið 1987 taldist það til tíðinda að sjá hjólreiðafólk á hringveginum. Alla jafna var þá um að ræða ævintýrasólgna ferðamenn. Hin fimmtuga prestsfrú, Auður Guðjónsdóttir, vakti þar af leiðandi töluverða athygli þegar til hennar sást á á forláta þriggja gíra kvenmannshjóli með fótbremsu og með sjö sparikjóla í farteskinu. Auður Guðjónsdóttir, sem þá var búsett í Bergland í norðvesturhluta Ontario...
InnlentLífshættuleg gasmengun við gosið – Lögreglan bannar umferð og lokar svæðinu10. júlí 2023 „Vegna lífshættulegrar gasmengunar hefur lögreglan lokað gossvæðinu,“ segir í sms-skilaboðum frá lögreglunni á Suðurnesjum til aflestra þeirra sem eru á Reykjanessvæðinu. Mikill mökkur er frá gossvæðinu við Litla Hrút og eiturgufur ógna þeim sem kom of nærri og lenda í reyknum gosstöðvunum. Gosið er tífalt stærra en fyrsta gosið af þremur á svæðinu. Gossprungan nú er næstum kílómeter að lengd....
InnlentMagnús Tumi sáttur með stærð gossins: „Þetta er enginn ræfill“10. júlí 2023 „Þetta er enginn ræfill,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, við Ríkissjónvarpið þar sem hann lýsti gosinu sem nú er hafið við Litla Hrút. Magnús Tumi átti þau fleyfgur orð þegar fyrsta eldgosið hófst að það væri hálfgerður ræfill. Gosið nú er um tífalt stærra en fyrsta gosið, áripð 2021. Mynd / Samsett / Facebook: Magnús...
HeimurVerður mannveran ódauðleg 2030?10. júlí 2023 Framtíðarsinninn Ray Kurzweil spáir því að árið 2030 muni vísindin vera á þeim stað að lífslíkur fólks verði auknar um meira en eitt ár á ári hverju. Það myndi þýða, ef við náum að tóra í nokkur ár í viðbót, að við myndum ekki láta lífið af náttúrulegaum orsökum. Þennan spádóm byggir hann á því að gervigreind muni fyrst ná...
InnlentHættustig Almannavarna virkjað: Biðlað til fólks að halda sig frá gosstöðvum10. júlí 2023 Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögregluna á Suðurnesjum, hefur virkjað hættuustig Almannavarna vegna gossins sem hafið við litla Hrút. Almannavarnir biðla til fólks að halda sig frá upptökum gossins þar sem mikilvægt sé að halda svæðinu öruggu og vísindamenn séu á svæðinu að meta stöðuna. Þetta kemur fram á vef Almannavarna, en þar segir ennfremur um hættuástand: „Ef hættumat leiðir í...
InnlentEldgos er hafið á Reykjanesi10. júlí 2023 RÚV greinir frá því að eldgos sé hafið á Reykjanesskaga. Mikinn reyk má sjá berast frá svæðinu bæði í Áslandshverfi í Hafnarfirði og frá Reykjanesbraut.
InnlentUndirbúa flutning vélarinnar10. júlí 2023 Þorkell Ágústsson hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa vildi ekki tjá sig í samtali við RÚV um tildrög flugslyssins sem tók þrjú líf á Austurlandi í gær. Rannsókn er í höndum rannsóknarnefndarinnar og Lögreglunnar á Austurlandi. Flugvélarinnar var leitað í tvo tíma í gærkvöldi áður en hún fannst í grýttum jarðvegi. Tveir farþegar voru um borð ásamt flugmanni. Allir þrír létust. Landhelgisgæslan hefur...