InnlentSparkaði í dyr löggunnar og fékk gistingu – Nafnlaus farþegi og ökumaður án réttinda6. febrúar 2025 Fjórir menn gistu fangaklefa lögreglunnar í nótt. Sauðdrukknu fólki var vísað út af gistiheimili. Höfðu uppi ölvunarlæti og ofstopa gagnvart starfsfólki. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af sama manni seinna vegna framkomu hans. Hann var óvelkominn sökum hátternis og enn vísað á dyr. Maðurinn fór þá á lögreglustöðina en átti erfitt með að gera sig skiljanlegan. Lögreglan vísaði honum frá...
MannlífiðAlgjör skálmöld ríkti á Seyðisfirði 1975: „Þetta er orðið eins og í Víetnam“5. febrúar 2025 Sannkölluð skálmöld ríkti á Seyðisfirði í desemberbyrjun árið 1975 en hópur unglinga gekk svo fram af lögreglumönnum í bænum að þeir sögðu upp störfum sínum. Þann 3. desember árið 1975 birti Dagblaðið frétt frá Seyðisfirði en þar var fullyrt að Skálmöld ríkti í bænum. Báðir lögreglumennirnir í bænum sögðu upp störfum þar sem þeim þótti bæjarfógetinn taka illa á vandræðaunglingum...
InnlentKennarar í fimm framhaldsskólum á leið í verkfall – Samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta5. febrúar 2025 Verkfall hefst í Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga 21. febrúar, hafi samningar ekki náðst en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands. „Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) í Borgarholtsskóla, Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga greiddu atkvæði um boðun verkfalla. Verkfallsaðgerðir...
MenningHannes minnist Björgólfs: „Hann var hugmyndaríkur, viðkunnanlegur og góðviljaður maður“5. febrúar 2025 Hannes Hólmsteinn Gissurarson minnist vinar síns, Björgólfs Guðmundssonar sem lést á sunnudaginn. Stjórnmálaprófessorinn Emeritus, Hannes Hólmsteinn Gissurarson minnist Björgólfs Guðmundssonar, viðskiptamanns, sem lést 85 ára að aldri síðastliðinn sunnudag. Segir Hannes í Facebook-færslu að Björgólfur hafi verið „hugmyndaríkur, viðkunnanlegur og góðviljaður maður“ og að það hafi verið farið illa með hann í Hafskipsmálinu svokallaða á sínum tíma. Segist Hannes hafa...
HeimurLögreglan í Ohio leitar að byssumanni sem drap einn og særði fimm5. febrúar 2025 Lögreglan í Ohio gerir nú dauðaleit að manni sem er talinn hafa drepið einn og sært fimm aðra í gærkvöldi í vöruhúsi snyrtivörufyrirtækisins KDC/One í New Albany. Yfirvöld hafa greint frá því að maðurinn sem er grunaður um verknaðinn heitir Bruce Reginald Foster III og hefur lögreglan birt mynd af honum. Hann var starfsmaður snyrtivöruframleiðandans og hafði verið í vinnunni...
InnlentEldur vill fá miskabætur frá RÚV: „Farið mjög klúrum og ruddalegum orðum um kynfæri“5. febrúar 2025 Eldur Smári Kristinsson, formaður Samtakanna 22 og frambjóðandi Lýðræðisflokksins, fer fram á miskabætur frá RÚV og Bergsteini Sigurðssyni fréttamanni vegna ummæla sem höfð voru um hann í þættinum Forystusætið sem var sýndur í fyrra. Í þættinum ræddi Bergsteinn við Arnar Þór Jónsson, formann Lýðræðisflokksins, um aðkomu Elds að flokknum en hann var oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi. „Tölum einmitt um þjóna...
InnlentAlmannavarnir lýsa yfir óvissustigi – Rauð viðvörun á nær öllu landinu5. febrúar 2025 Almannavarnir hafa nú lýst yfir óvissustigi vegna veðurs sem væntanlegt er á landinu upp úr klukkan 14:00 í dag. Rauðar viðvaranir gilda um nær allt land. Samkvæmt frétt RÚV hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Vestfjörðum, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn....
MenningKannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði5. febrúar 2025 „Árleg áætluð eftirspurn eftir blóðvökva hefur verið um 160 milljónir lítra en um 100 milljónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sérfræðingur á sviði líftækni og læknisfræði, en fyrirtæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjörbylt heilbrigðiskerfinu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með doktorspróf í læknisfræði frá Charles háskólanum í...
InnlentGuðrún boðar til fundar: „Þar munum við ræða um framtíðina“5. febrúar 2025 Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hefur boðað til fundar á laugardaginn 8. febrúar og er búist við því að hún muni tilkynna framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hingað til hefur aðeins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir boðið sig fram en líklegt er að hörð barátta sé framundan muni Guðrún bjóða sig fram. „Kæru vinir. Nú styttist óðum í að sjálfstæðismenn...
InnlentSvartklæddur maður reyndi að lauma sér á lóð Hvíta hússins – MYNDBAND5. febrúar 2025 Það eru sennilega til margar betri hugmyndir en að reyna klifra yfir grindverk Hvíta Hússins en það er nákvæmlega það sem svartklæddur maður gerði á mánudaginn. Maðurinn hætti við tilraun sína þegar leyniþjónusta Bandaríkjanna mætti á svæðið og var maðurinn handtekinn fyrir tilraunina. Vitni segja að harkalega hafi verið tekið á manninum og leyniþjónustan hafi brugðist hratt við. Fjölmiðlar vestanhafs...
MenningKarl Ágúst leitar að týndu kvikmyndahandriti: „Skaði sem ég á erfitt með að sætta mig við“5. febrúar 2025 Karl Ágúst Úlfsson leitar logandi ljósi að handriti að kvikmynd sem hann ætlaði sér að leikstýra um síðustu aldarmót. Einn ástkærasti leikari þjóðarinnar, Karl Ágúst Úlfsson vill athuga hvort hann geti ekki fundið handrit að kvikmynd sem til stóð að hann myndi leikstýra um síðustu aldarmót en hann skrifaði handritið sjálfur. Fyrir handritið fékk hann tvívegis styrk sem og framleiðslustyrk...
HeimurAlbenese um hugmyndir Trumps um flutning Gaza-búa: „Það sem hann leggur til er… kjaftæði“5. febrúar 2025 „Þetta er ólöglegt, siðlaust og algjörlega óábyrgt,“ segir Francesca Albanese, sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku landsvæðin, þegar hún er spurð um tillögu Trumps Bandaríkjaforseta um að fjarlægja Palestínumenn frá Gaza og láta Bandaríkin taka eignarhaldið. „Það sem hann leggur til er… kjaftæði,“ sagði Albanese á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur. „Það mun gera kreppuna á svæðinu enn verri.“...
HeimurSkotmaðurinn í Örebro var 35 ára og tekjulaus – Hafði skotveiðileyfi fyrir veiðirifflinum5. febrúar 2025 Maðurinn sem skaut 10 til bana og síðan sjálfan sig í Campus Risbergska-skólanum í Örebro í gær var 35 ára gamall og hafði engin tengsl við gengi. Samkvæmt SVT var morðinginn sem mætti í Campus Risbergska-skólann, sem er skóli fyrir fullorðna í Örebro, 35 ára gamall og tekjulaus, með enga tengingu við glæpagengi. Hann mætti í skólann vopnaður veiðiriffli sem...
InnlentGuðmundur Jónsson er látinn5. febrúar 2025 Guðmundur Jónsson vélfræðingur er látinn en hann var 92 ára gamall. Mbl.is greindi frá andláti hans. Guðmundur fæddist í Reykjavík árið 1932 og voru foreldrar hans Jón Jóhannes Ármannsson og Guðlaug Margrét Guðmundsdóttir. Eftir að hafa lokið grunnskólanámi fór Guðmundur í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði vélfræði. Hann var í starfsnámi hjá Vélsmiðjunni Héðni og lauk vélstjórnarprófi frá...
InnlentÁ að leyfa hundahald í fjölbýli án samþykki annarra íbúa?5. febrúar 2025 Nú hefur ný ríkisstjórn tekið við og er eitt af málunum sem eru á dagskrá hennar mjög umdeilt málefni. „Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (dýrahald). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um fjöleignarhús sem varða dýrahald þannig að samþykki annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi sé ekki nauðsynlegt.“ Ljóst er að...
MenningAnna gleðst yfir veðrinu en hefur áhyggjur af ársuppgjörunum: „Þið eigið alla mína samúð í dag“5. febrúar 2025 Anna Kristjánsdóttir hefur engar áhyggjur af veðrinu framundan enda er blessuð blíðan með lögheimili á Tenerife. Í nýjustu dagbókarfærslu sinni talar vélstjórinn og þjóðargersemin Anna Kristjánsdóttir um veðrið á Tenerife og fjárfestingar. Í fyrri hluta færslunnar, sem hún birti á Facebook í morgun, er veðrið henni hugleikið en hún segir Íslendinga eiga alla hennar samúð en appelsínugul viðvörun er yfir...