Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Karl Ágúst leitar að týndu kvikmyndahandriti: „Skaði sem ég á erfitt með að sætta mig við“

Karl Ágúst Úlfsson.
Karl Ágúst Úlfsson.

Karl Ágúst Úlfsson leitar log­andi ljósi að hand­riti að kvik­mynd sem hann ætl­aði sér að leik­stýra um síð­ustu ald­ar­mót.

Einn ást­kær­asti leik­ari þjóð­ar­innar, Karl Ágúst Úlfsson vill athuga hvort hann geti ekki fundið hand­rit að kvik­mynd sem til stóð að hann myndi leik­stýra um síð­ustu ald­ar­mót en hann skrif­aði hand­ritið sjálfur. Fyrir hand­ritið fékk hann tví­vegis styrk sem og fram­leiðslu­styrk úr Kvik­mynda­sjóði en neidd­ist svo til að skila styrkj­unum þegar verk­efnið varð að engu. Facebook-færsla Karls Ágústs um málið byrjar á eft­ir­far­andi hátt:

„Kæru vinir, vanda­menn, kunn­ingjar og allir sem tengj­ast mér með einum eða öðrum hætti eða tengj­ast mér hrein­lega ekki neitt.

Í kringum síð­ustu alda­mót mun­aði hárs­breidd að ég leik­stýrði bíó­mynd­inni DRAUMUR Í DÓS. Ég hafði skrifað hand­ritið og fengið til þess tví­vegis hand­rits­styrk og síðan fullan fram­leiðslu­styrk úr Kvik­mynda­sjóði. Það var fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Saga film sem ætl­aði að vinna þetta verk­efni með mér. Síðan gerð­ist það af asna­legum ástæðum, sem ég ætla ekki að rekja hér og nú, að myndin varð aldrei að veru­leika og ég skil­aði styrknum í heild sinni til sjóðs­ins.“

Segir Karl Ágúst að hvernig sem leitað er, finn­ist hand­ritið ekki. Því leyti hann til vina og vanda­manna á Facebook og spyr hvort ein­hver lumi á hand­rit­inu. 

„Nú vill einnig svo asna­lega til að umrætt hand­rit finnst ekki, hvernig sem leitað er, hvorki útprentað, inni á gömlum tölvu­diskum eða í tölvu­póstum til þeirra sem áttu og ætl­uðu að vinna að mynd­inni með mér. Að vísu hafa fleiri verk eftir mig glat­ast af ýmsum ástæðum (aðal­lega asna­legum), en þetta er ákaf­lega sér­kenni­legur skaði sem ég á erfitt með að sætta mig við.

Þess vegna spyr ég: Er hugs­an­legt að ein­hver lumi á DRAUMI Í DÓS í ein­hverju formi? Og ef svo ólík­lega vill til: Væri sama mann­eskja fáan­leg til að lána mér það í svolitla stund?

Annað var það nú ekki í þetta sinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki, heldur farga henni
Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Menning

Menning

Ris og fall Krumma

Einn besti tónlistarmaður landsins á 21. öldinni
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi