Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Eldur vill fá miskabætur frá RÚV: „Farið mjög klúrum og ruddalegum orðum um kynfæri“

Eldur Smári, formaður Samtakanna 22.
Eldur Smári, for­maður Sam­tak­anna 22.

Eldur Smári Krist­ins­son, for­maður Sam­tak­anna 22 og fram­bjóð­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins, fer fram á miska­bætur frá RÚV og Berg­steini Sig­urðs­syni frétta­manni vegna ummæla sem höfð voru um hann í þætt­inum For­ystu­sætið sem var sýndur í fyrra.

Í þætt­inum ræddi Berg­steinn við Arnar Þór Jónsson, for­mann Lýð­ræð­is­flokks­ins, um aðkomu Elds að flokknum en hann var odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

„Tölum einmitt um þjóna og þá sem þið veljið til þjón­ustu. Oddviti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, Eldur Smári Krist­ins­son, hann er for­maður Sam­tak­anna 22, sam­taka sem hafa verið sökuð um að ala á andúð í garð trans fólks, hefur verið fjar­lægður af lög­reglu úr grunn­skóla fyrir að mæta þar í leyf­is­leysi, og mynda starfs­fólk og börn, hann hefur sakað þau sem berj­ast fyrir rétt­indum trans fólks um barn­a­níð, þar á meðal nafn­greinda íslenska bar­áttu­konu, hann hefur líka þrá­stag­ast um að hún sé karl, farið mjög klúrum og rudda­legum orðum um kyn­færi hennar á opin­berum vett­vangi…“

Við þessi ummæli er Eldur Smári ekki sáttur og fer fram á miska­bætur.

Umdeildur for­maður

Rétt er að taka fram að Samtökin 22 hafa verið kölluð hat­urs­sam­tök af fólki sem stendur með trans sam­fé­lag­inu. Anna Krist­jáns­dóttir, ein fyrsta trans kona Íslands, hefur sagt að eina sem sam­tökin hafi á stefnu­skrá sinni sé að hat­ast út í trans fólk. Samtökin 22 segj­ast hins vegar vera bar­áttu­sam­tök fyrir homma og les­b­íur en tæp­lega 300 sam­kyn­hneigðir ein­stak­lingar skrif­uðu undir bréf árið 2023 þar sem var sagt að sam­tökin töl­uðu ekki fyrir hönd þeirra og væru ekki í raun ekki hags­muna­sam­tök fyrir sam­kyn­hneigt fólk.

Eldur var sömu­leiðis sak­aður um að hvatt Uglu Stefaníu Krist­jönu Jóns­dóttur, trans konu og aktí­vista, að fremja sjálfs­víg en hann neit­aði því við­tali við Heim­ild­ina.

Reykja­vík­ur­borg til­kynnti Eld Smára til lög­regl­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir að mæta í Lang­holts­skóla í leyf­is­leysi og taka starfs­fólk upp á mynd­band árið 2023. Eldur tal­aði einnig í fyrra á ráð­stefnu á vegum Genspect sam­tak­anna en þau hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir níð í garð trans fólks og hafa hin virtu mann­rétt­inda­sam­tök Southern Poverty Law Center sagt Genspect vera hat­urs­sam­tök. Þá kærðu Samtökin 78 Eld Smára í fyrra fyrir sjö ummæli sem hann hefur látið falla á und­an­förnum árum. Það mál er ennþá í rann­sókn sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs.

Mannlíf hafði sam­band við Berg­stein vegna máls­ins en hann vís­aði á Margréti Mart­eins­dóttur, skrif­stofu­stjóra RÚV. Í svari hennar við fyr­ir­spurn Mannlífs sagði hún að RÚV hafi ekki tekið afstöðu til máls­ins.

Eldur birti kröfu sína á Facebook
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki, heldur farga henni
Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Innlent

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns