„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
InnlentGísli er fallinn frá22. janúar 2024 Gísli Hinrik Sigurðsson er látinn, 79 ára gamall. Mbl.is greindi frá. Gísli fæddist árið 1944 í Hrísey en fluttist í Kópavoginn árið 1959. Gísli byrjaði ungur að starfa á skipi og gerði í nokkur ár. Hann ætlaði sér að verða flugmaður en vegna sjóngalla þurfti hann að skipta um nám. Lauk hann radíósímvirkjun hjá Landssímanum og hóf störf við sjónvarpsútsendingar...
InnlentSvandís reynir sættir í skugga vantrauststillögu: „Enginn illur ásetningur“22. janúar 2024 „Álit umboðsmanns Alþingis hefur verið mér mikið umhugsunarefni. Bæði sem stjórnmálamaður og embættismaður. Það er hverjum ráðherra þungbært þegar álit umboðsmanns leiðir í ljós að ráðstafanir séu ekki eins og best verður á kosið,“ skrifar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra á Facebook í morgun um þá stöðu sem upp er komin vegna áfellisdóms umboðsmanns Alþingis varðandi hvalveiðibann ráðherrans. Vantraust í dag Inga...
SlúðurHrollvekja Katrínar22. janúar 2024 Það er kominn kosningaskjálfti í marga þótt rúmt ár sé til alþingiskosninga. Talsverðar líkur eru á því að ríkisstjórnin muni sprynga um útlendingamál og hvalamál Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Fari svo er fátt um ráð annað en ganga til kosninga, nánast samhliða forsetakosningum. Önnur og torfærari leið er að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur reyni að fá Ingu Sæland og Flokks fólksins til...
InnlentGústaf um mótmælendur: „Lygarar og loddarar sem lifa á íslenskum bótum“21. janúar 2024 „Er þetta það sem koma skal á Íslandi?“ spyr Gústaf Níelsson, sagnfræðingur, fylgjendur sína á Facebook. „Hér getur að líta unga karla frá Palestínu. Þeir hafa ekki dýft hendi í kalt vatn árum saman, eru lygarar og loddarar, sem lifa á íslenskum bótum,“ með færslunni hengir hann umdeilda frétt frá Mbl undir yfirskriftinni, Kærir mótmælendur fyrir hatursorðræðu. María Lilja Ingvaldar-Þrastardóttir...
13:22InnlentMammaKolbeinn leitaði huggunar: „Hún sagði við mig að ég þyrfti ekki að vera hræddur við myrkrið“21. janúar 2024 „Frá Dalmynni lá leið okkar síðan til Reykjavíkur þar sem við komust nokkurn veginn fyrir vind á Nesvegi 12 sem nú er Neshagi,“ segir Kolbeinn Þorsteinsson í þriðji þætti í hlaðvarpsseríunnar Mamma á hlaðvarpsveitu Mannlífs. Í þættinum segir hann frá bernsku sinni og minningum um móður sína: „Þarna áttum við systkinin þrjú þó heima og mamma var hjá okkur. Við...
InnlentFiskbúð Fúsa lokar: „Ég er að fara í smá aðgerð“21. janúar 2024 Fiskbúð Fúsa mun vera lokuð næstu tvær vikur. Sigfús Sigurðsson tilkynnti lokunina á Fésbókarsíðu fiskbúðarinnar fyrir helgi: „Ég er að fara í smá aðgerð á mánudaginn kemur.“ Sigfús stefnir á opnun 5. febrúar. Mannlíf og velunnendur Fúsa óska honum góðs gengis og skjóts bata. Færslu fiskbúðarinnar má sjá hér:
Innlent„Hafa hvorki mannafla né fé til að hjálpa fólki sem er að drepast úr frekju“21. janúar 2024 Brynjar Níelsson fyrrverandi alþingismaður og aðstoðamaður dómsmálaráðherra segir í nýrri Facebookar-færslu: „Stundum upplifi ég að vestræn samfélög séu komin á endastöð.“ Í skrifum sínum býsnast hann yfir samfélaginu sem við búum í: „Við erum hætt að ala upp börnin og kennum þeim lítið í skólum nema um kynlíf og fíkniefni. Við tökum helst enga ábyrgð á eigin lífi og kennum...
HeimurGóðhjartaður pípari: „Við erum á sólarhringsvakt fyrir hana“21. janúar 2024 „Ég fór til mömmu í gær og stóri dramatíski hitakúturinn hennar lak. Ég hringdi í systur mína sem hafði upp á pípara,“ segir í færslu frá Christine Anne Rowlands sem býr í Padham í Englandi. Móðir Christine er 91 árs og er á líknandi meðferð vegna bráðahvítblæðis. Pípulagningamaðurinn, James Anderson sem sinnti útkalli þeirra, var í nágrenninu í öðrum erindagjörðum...
14:48MenningSakamáliðSakamálið: Blóðsjúgandi morðinginn21. janúar 2024 Donald rak í rogastans þegar hann sá hve vel skipulögð vinnustofa Haighs var; verkfæri til allra verka sem handlaginn maður kann að taka sér fyrir hendur, logsuðutæki, trésmíðaáhöld og verkfæri járnsmiðs. Í einu horninu stóð stærðar tunna full af sýru og forvitinn gekk McSwan að henni. Hann var að því kominn að spyrja til hverra hluta þetta væri ætlað þegar...
InnlentMaría Lilja kærir mbl til siðanefndar vegna fréttar: „Til þess fallin að kynda undir kynþáttahatur“21. janúar 2024 María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp hefur lagt fram kæru á mbl.is til siðanefndar blaðamanna. Málið varðar frétt sem birtist á miðlinum undir yfirskriftinni: „Kærir mótmælendur fyrir hatursorðræðu“. María Lilja telur að fréttin, fyrirsögnin og myndavalið sé ekki sett fram af hlutleysi og virðingu fyrir viðfangsefninu, og útskýrir ítarlega í færslu sem hún birti á Facebook. „Blaðamaður gengur þar mjög langt í...
InnlentStaðan í Grindavík – Tvö staðfest tjón vegna frostskemmda21. janúar 2024 Könnuð hafa verið 900 heimili í Grindavík og eru tvö staðfest tjón sökum frostskemmda. Forsvarsmenn Grindavíkurbæjar birtu stöðu mála er varðar rafmagn og vatnslagnir á heimasíðunni Grindavík.is. Rafveita virðist virk í allri byggðinni. Hitaveitan er virk á flestum svæðum fyrir utan austast byggðin, Þókötlustaðahverfi, og á hafnarsvæðinu. Hópur pípulagningamanna fór yfir 350 íbúðir í gær. Þar með hafa 900 íbúðir...
InnlentRán og skemmdarverk framin í Hafnarfirði21. janúar 2024 Tvær tilkynningar bárust lögreglunni vegna unglinga í hópum sem brutu rúður í tveimur biðskýlum bæjarins. Þess auk barst tilkynning um rán. Ráðist var á ungan einstakling og hafður af honum fatnaður og önnur verðmæti. Samkvæmt Dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var talsvert um slys og óhöpp í umferðinni. Í Hlíðahverfi í Reykjavík skullu saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur...
SlúðurBjarni stelur glæpnum21. janúar 2024 Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra fékk sviðið í gær þegar hann hreytti úr sér ónotum í garð hælisleitenda sem hafa tjaldað á Austurvelli í mótmælaskyni en með leyfi Reykjavíkurborgar. „Það er hörmung að sjá tjaldbúðir við Austurvöll sem nú hafa staðið þar síðan 27. desember síðstliðinn. Það er óboðlegt með öllu að Reykjavíkurborg hafi gefið leyfi fyrir tjaldbúðunum á þessum helga stað...
InnlentManuela Ósk sakar Ásdísi Rán og Sverri Einar um stuld: „Ættu að vita að þetta er brot“20. janúar 2024 „Af gefnu tilefni, þar sem mynd af mínum titilhöfum hefur verið notuð í leyfisleysi vil ég koma því á framfæri að hvort ég né keppnin mín Ungfrú Ísland erum á nokkurn hátt tengd þessari skemmtistaðakeppni!“ ritar Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Ungrfrú Íslands, í færslu á Instagram. Manuela Ósk greinir frá því að hún hafi sent aðstandendum keppninnar Miss...
InnlentMilljón króna kveðjuhóf í boði borgarinnar20. janúar 2024 Kveðjuhóf fráfarandi borgarstjóra Dags. B. Eggertssonar sem fram fór í Höfða á þriðjudaginn síðastliðinn kostaði borgina 927.200 krónur, þetta kom fram í frétt á mbl.is. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar upplýsti miðilinn um sundurliðun kostnaðar. 94 manns var boðið í samkvæmið. Ekki ert vitað hversu margir eða hverjir þáðu boðið. Veitingarnar kostuðu tæpa hálfa milljón eða 487.000 krónur, drykkir veislunnar...
InnlentHlaut lífshættulega áverka eftir hnífsstungu í nótt: „Þarna hafi aðili verið á gangi úti á götu“20. janúar 2024 Karlmaður var stunginn á gatnamótum Hringbrautar og Hofsvallagötu í nótt. Í samtali við fréttastofu Vísis segir Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild að karlmaðurinn sem er á þrítugsaldri hafi hlotið lífshættulega áverka eftir að hafa verið stunginn í búkinn. Hann var fluttur á bráðamótöku þar sem gert var að sárum hans. Ástand mannsins er nú stöðugt. Eitt vitni var...