
Uppistandarinn Stefán Ingvar Vigfússon, þekktur sem meðlimur grínflokksins VHS, snýr aftur á svið með nýja sýningu þar sem aðeins eitt viðfangsefni er í brennidepli: kettir.
Sýningin ber heitið Brandarar um ketti (og einn fyrir ketti) og fer fram sunnudaginn 19. október klukkan 17:30 í Tjarnarbíó. Stefán lofar sextíu mínútna einleik þar sem hver einasti brandari fjallar á einhvern hátt um ketti.
„Ég ætla mér ekkert annað í þetta skiptið – engir aðrir brandarar, bara kettir,“ segir Stefán í fréttatilkynningu.
Sýningin kemur í kjölfar þess að Stefán og sambýliskona hans, Hólmfríður María, vöktu mikla athygli í fyrra þegar þau fermdu köttinn Lísu að húmjáníslum sið, einmitt í sama sal Tjarnarbíós. „Á plaggatinu er mynd af okkur Hófí og Lísu úr fermingunni, þar sem Lísa er í fermingarkufli sem tengdamamma saumaði á hana. Þetta var stórkostlegur dagur,” rifjar hann upp.

Auk brandara um ketti hyggst Stefán verða fyrstur íslenskra grínista til að flytja brandara sérstaklega saminn fyrir ketti. „Ég get ekki sagt neitt meira, en það verður einn brandari sem aðeins kettir munu skilja,“ segir hann og hlær.
Skemmtun og góðgerð
Fimmtungur af tekjum kvöldsins rennur til Kattholts. Stefán segir það skipta hann máli að sýningin hafi bæði gleðigildi og nyti jafnframt katta samfélagsins. „Ég lít reyndar á þetta á sem svo að ég sé borga köttunum afnotargjald, þeir ráða svo sjálfir hvernig því er ráðstafað í holtinu þeirra.“
Miðasala er hafin á Tix.is og er sýningin þegar nánast uppseld.
Komment