1
Innlent

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

2
Minning

Jónas Sigurjónsson er fallinn frá

3
Heimur

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

4
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

5
Fólk

Eitt fallegasta hús borgarinnar bíður bjargvættar

6
Heimur

Óður hestur drap ungmenni í Central Park

7
Heimur

Kona í sigurvímu „twerkaði“ í miðjum slagsmálum

8
Heimur

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi

9
Innlent

Bílstjóri ók þar sem alls ekki má aka

10
Landið

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

Til baka

„Mér fannst ekkert eftir nema að jörðin myndi opnast og gleypa mig“

Ágústa lýsir áratugalöngu ofbeldi.

Ágústa Ágústsdóttir
Ágústa ÁgústsdóttirVaraþingkonan er í viðtali í nýjasta blaði Vikunnar.
Mynd: Alþingi

Ágústa Ágústsdóttir, varaþingkona Miðflokksins, hefur nú stigið fram og greint frá langvarandi heimilisofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi fyrrverandi eiginmanns síns, Jóns Þórs Dagbjartssonar. Jón hefur áður hlotið dóm fyrir kynferðisbrot og er nú ákærður fyrir tilraun til manndráps gegn Hafdísi Báru Óskarsdóttur, fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði. Ágústa er í viðtali í nýjasta tölublaði tímaritsins Vikunnar.

Jón var árið 2010 dæmdur fyrir kynferðislega misnotkun á stúlku þegar hann starfaði á meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal. Á þeim tíma tók Ágústa upp hanskann fyrir Jón og sakaði stúlkurnar sem höfðu stigið fram um mannorðsmorð í fjölmiðlum. Það hafði djúp áhrif á þolendur, sem voru allar 16 ára gamlar og úr brotnum aðstæðum.

Nú hefur Ágústa ákveðið að segja sína eigin sögu. Hún lýsir því í viðtali í Vikunni, hvernig hún kynntist Jóni árið 1999 í Reykjavík og flutti skömmu síðar til Grindavíkur, þar sem hann leiddi mótorhjólaklúbbinn Fáfni, tengdan Hells Angels. Hún segir hann hafa verið heillandi og spennandi í fyrstu, en sambandið hafi brátt breyst í ógnarstjórn og ofbeldi.

„Hann tilheyrði þá vélhjólaklúbbnum Fáfni sem var tengdur Hells Angels og var formaður þessa klúbbs. Þetta fannst mér mjög spennandi af því að ég var sjálf þessi villta týpa og uppreisnarseggur. Þannig hafði ég alltaf farið í gegnum lífið, ég bjargaði mér og fór á hnefanum. Þó svo að skapið hafi verið mér oft til trafala, þá var það vöggugjöf því það kom mér áfram, í stað þess að verða undir. Það fylgdi mér allt mitt líf þó svo að það hafi ekki sést á mér því ég var ekki að brjótast út í skapofsa.“

Eftir að Jón hlaut dóm 2010, sat hann inni í eitt og hálft ár og kláraði refsingu sína með ökklabandi. Ágústa heimsótti hann vikulega í fangelsið á Akureyri. „Ég upplifði algjört hrun, af því að ég var búin að berjast svo mikið fyrir öllu. Mér fannst ekkert eftir nema að jörðin myndi opnast og gleypa mig. Þannig leið mér, ég var í „survival mode“ þar sem ég var að reyna að lifa af. Hann var færður í fangelsið á Akureyri og ég heimsótti hann í hverri viku. Mér fannst ég vera skyldug til að gera það og þannig var þrýstingurinn. Ég tók þá ákvörðun hins vegar mjög fljótlega að ég ætlaði alls ekki að sofa hjá honum í þessu fangelsi. Ég var svo brotin eftir hann og hafði sjálf mátt þola kynferðislegt ofbeldi í okkar sambandi. Í fangelsinu var gestaherbergi með svefnsófa sem var fyrir gesti og ég gat ekki hugsað mér að sofa hjá honum í þessum sófa. Mér leið bara eins og ég væri skítug þegar ég kom út. Alls konar fólk var búið að sofa þarna. Ég tilkynnti honum að ég gæti þetta ekki, en hann gat aldrei virt þetta og það var alltaf þrýstingur. Það endaði svo með því að ég ákvað að taka alltaf börnin með mér í heimsókn til hans. Þá varð hann argur og pirraður og hafði engan áhuga á því að vera með börnin.“

Þegar hann losnaði sýndi hann engan vilja til að sinna börnunum þeirra, en síðar birtist hann aftur með nýja konu, Hafdísi Báru. „Ekki einu sinni um helgar. Hann fékkst ekki til að skrifa undir skilnaðarpappírana fyrr en ári síðar. Svo einn daginn sendir hann mér skilaboð um að hann vildi koma og hitta börnin. Ég samþykki það og hann sendi mér að VIÐ séum að koma. Þá átta ég mig á því að það er komin önnur kona í spilið og það er Hafdís, sem ég hélt reyndar í fyrstu að væri elsta dóttir hans vegna aldursbilsins,“ segir Ágústa. Fljótlega fór ofbeldið að koma fram í því sambandi líka.

Hafdís hringdi síðar í Ágústu, skjálfandi og bað hana afsökunar fyrir að hafa ekki trúað henni fyrr. Þær tóku að mynda tengsl og Ágústa vonaðist til að Hafdís sleppi út úr sambandinu. Þegar það gerðist hafði Jón ráðist á hana, reynt að nauðga henni og síðar reynt að drepa hana. Hún sagði mér að hún væri að fara að kæra hann. „Hún fer til lögreglunnar en fær sömu viðbrögð og ég hafði fengið; Eru þetta ekki bara innihaldslausar hótanir? Hún leggur inn beiðni um nálgunarbann en fær höfnun á það deginum áður en hann reynir að drepa hana. Ennþá gekk hann laus og er ekki tekinn í gæsluvarðhald. Sem betur fer var Hafdís hugrökk að stíga fram og segja sögu sína í fjölmiðlum, sem varð til þess að hann er loksins tekinn inn í gæsluvarðhald.“ segir Ágústa.

Aðalmeðferð í málinu gegn Jóni hófst 7. maí í Héraðsdómi Austurlands. Ágústa segir vilja fá svör við ýmsu. Til dæmis hvaða dóm hann fær? Hversu lengi fær hann að ganga laus áður en hann er tekinn inn? Og þegar hann loksins fer inn, hvað afplánar hann raunverulega mikið?.

Ágústa biður nú stúlkurnar á Árbót afsökunar opinberlega, í viðtalinu í Vikunni. Hún viðurkennir að framganga hennar hafi valdið þeim djúpum sársauka og þjáningu. Með því að segja sína sögu vonast hún til að varpa ljósi á skaðann sem ofbeldi og trúnaðarrof getur valdið, og að koma af stað umræðu um nauðsyn breytinga í kerfinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hvetur til varúðar við glasafrjóvgun
Heimur

Hvetur til varúðar við glasafrjóvgun

Leggur áherslu á að velja stofnanir sem hafi starfað lengi
Lögreglumenn í Los Angeles skutu hund til bana
Myndband
Heimur

Lögreglumenn í Los Angeles skutu hund til bana

Stefán Einar óviss hvernig meirihlutasamstarf virkar
Pólitík

Stefán Einar óviss hvernig meirihlutasamstarf virkar

Leituðu að fíkniefnum en fundu Picasso
Heimur

Leituðu að fíkniefnum en fundu Picasso

Handtekinn fyrir að ráðast á múslima í Skotlandi
Heimur

Handtekinn fyrir að ráðast á múslima í Skotlandi

Eitt fallegasta hús borgarinnar bíður bjargvættar
Myndir
Fólk

Eitt fallegasta hús borgarinnar bíður bjargvættar

Leigubílstjóri í vandræðum
Innlent

Leigubílstjóri í vandræðum

Kleip í konurassa af hlaupahjóli
Innlent

Kleip í konurassa af hlaupahjóli

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri
Landið

Nefbrot og meðvitundarleysi settu svip sinn á Akureyri

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi
Innlent

Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul
Heimur

Carly Douglas látin aðeins 36 ára gömul

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi
Heimur

Einn látinn og tugir slasaðir eftir alvarlegt lestarslys í Bretlandi

Fólk

Eitt fallegasta hús borgarinnar bíður bjargvættar
Myndir
Fólk

Eitt fallegasta hús borgarinnar bíður bjargvættar

Húsið var reist árið 1978
Sunnuvegshöll komin á sölulista
Myndir
Fólk

Sunnuvegshöll komin á sölulista

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla
Myndir
Fólk

Pottur, pitsaofn og pláss fyrir alla

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní
Myndband
Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu

Málmhausar skelltu sér í golf
Myndir
Fólk

Málmhausar skelltu sér í golf

Loka auglýsingu