1
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

2
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

3
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

4
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

5
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

6
Innlent

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar

7
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

8
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

9
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

10
Innlent

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu

Til baka

Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara

Fékk símtal frá umboðsmanni sínum

Aníta Briem
„Hann er ein stærsta gjöf sem ég hef fengið í lífinu mínu“
Mynd: Kazuma Takigawa

Aníta Briem, ein fjölhæfasta leikkona Íslands, hefur verið dugleg að leika í bæði íslenskum kvikmyndum og þáttum sem og alþjóðlegum stórmyndum. Hún hefur heillað áhorfendur með sinni miklu útgeislun en nú opnar hún sig um sitt persónulega líf í hlaðvarpsþættinum sem heitir: Fullorðins! Hlaðvarpið er í umsjón Kiddu, þar sem rætt er um allt sem telst til „fullorðins“ eins og þau lýsa þættinum.

Aníta ræðir í þættinum hvernig það hafi verið að vinna erlendis og það sem fjölmiðlar hafa haft mestan áhuga á upp á síðkastið, að hún sé í sambandi með yngri manni.

„Ég var að vinna að seríu fyrir Warner Brothers og ABC þegar ég fékk símtal frá umboðsmanni mínum. Stúdíóið hafði frétt að ég væri að sofa hjá einum meðleikaranum og krafðist þess að því yrði hætt. Þetta var alls ekki satt.“

Anítu brá við vegna þess að hún segir að þessar sögusagnir hafi ekki verið réttar. „Þetta var ekki satt, en þetta er áhugavert. Guð minn góður, hvað hef ég verið að gera? En karlmennirnir, mínir kollegar, þeir voru að gera alls konar og maður veltir því fyrir sér hvort að þeir hafi verið að fá þessi símtöl.“

Í viðtalinu ræðir hún opinskátt um ástarsamband sitt og segir að það komi alveg reglulega fyrir að það sé rætt í fjölmiðlum. Þá hefur verið sagt, „hún er „cougar“ eða Aníta hamingjusöm með yngri manni.“ Hún hlær að þessu og bætir við að „hann sé ein stærsta gjöf sem ég hef fengið í lífinu mínu. Hafþór er með stærsta hjarta og hann er svo yndislegur og okkur líður svo vel.“

Aníta sýndi snemma mikinn metnað og fluttist aðeins 16 ára gömul til Lundúna til að elta drauminn. Hún útskrifaðist úr hinum virta listaháskóla Royal Academy of Dramatic Art (RADA) skóla sem aðeins þeir allra hæfustu komast inn í.

Í kjölfarið fylgdu stór hlutverk á alþjóðavettvangi, Jane Seymour í The Tudors þar sem hún fór með hlutverk þriðju eiginkonu Hinriks áttunda og heillaði milljónir áhorfenda með tignarlegri og tilfinningaríkri frammistöðu. Einnig lék hún stórt hlutverk sem Hannah Ásgeirsson í Journey to the Center of the Earth þar sem hún lék aðalhlutverkið á móti Brendan Fraser.

Eftir að hafa búið og starfað í Los Angeles í mörg ár sneri Aníta aftur á heimaslóðir. Hún hefur tekið að sér dramatísk hlutverk á borð við kvikmyndina Svar við bréfi Helgu og þættina Ráðherrann og svo hefur hún einnig stigið fram sem sögumaður og handritshöfundur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Haustveðrið lætur finna fyrir sér í dag
Innlent

Haustveðrið lætur finna fyrir sér í dag

Gróin sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
Myndir
Fólk

Gróin sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði
Innlent

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu
Innlent

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki
Myndband
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi
Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar
Innlent

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Fólk

Gróin sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
Myndir
Fólk

Gróin sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

Húsið var reist árið 2009
Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Dýr miðborgardraumur með leyndum garði til sölu
Myndir
Fólk

Dýr miðborgardraumur með leyndum garði til sölu

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Loka auglýsingu