1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

3
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

4
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

5
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

6
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

7
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

8
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

9
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

10
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Til baka

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

„Hvers virði er samráð ef ekki er hlustað?“

Seyðisfjörður
Mynd: Kasa Fue/Wikipedia

Mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi verða haldin samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði í dag. Aðstandendur segja baráttuna snúast um meira en framtíð eins fjarðar og spyrja hversu mikið samráð sé í raun haft við íbúa.

Samtímis mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði verða haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfirði í dag klukkan 15. Samkomurnar verða tengdar með beinni útsendingu og sameiginlegri dagskrá.

Alls hafa 13.145 einstaklingar skrifað undir áskorun um verndun Seyðisfjarðar. Aðstandendur mótmælanna segja að í sex ár hafi íbúar staðið gegn áformum fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur um sjókvíaeldi í firðinum, en fyrirtækið sé í eigu norsku Måsøval-fjölskyldunnar í gegnum eignarhaldsfélagið Heimstø og tengdra aðila.

Í fréttatilkynningunni aðstandenda segir að Kaldvík vilji hefja eldi á 10 þúsund tonnum af fiski í firðinum, þrátt fyrir andstöðu um 75 prósenta íbúa samkvæmt könnunum.

Segja álitamál ekki hafa stöðvað leyfisveitingar

Aðstandendur mótmælanna benda á að á undanförnum sex árum hafi verið gerðar kannanir meðal íbúa, undirskriftum safnað, haldnir íbúafundir og sendar inn umsagnir. Þá hafi ýmis álitamál verið sett fram um náttúruvernd, lífríki, siglingaöryggi, þjóðaröryggi og réttindi íbúa og landeigenda.

Þrátt fyrir það hafi stjórnvöld veitt leyfi fyrir 10 þúsund tonna sjókvíaeldi í firðinum.

Samkvæmt tilkynningunni hefur enginn ráðherra sem fer með málaflokkinn viljað mæta á mótmælin til að taka við undirskriftunum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun þó taka við þeim á morgun klukkan 11.

„Hvers virði er samráð ef ekki er hlustað?“

Aðstandendur mótmælanna segja Seyðisfjörð orðinn táknmynd stærri spurninga um lýðræði, náttúruvernd og almannahagsmuni.

Þeir telja að málið snúist ekki aðeins um framtíð fjarðarins heldur einnig um hvaða fordæmi verði skapað fyrir önnur samfélög sem vilja vernda náttúru sína og hagsmuni komandi kynslóða.

Þeir spyrja meðal annars hvers virði samráð sé ef ekki sé hlustað á sjónarmið íbúa og hversu þungt almannahagsmunir vegi þegar þeir rekist á fjárhagslega sérhagsmuni.

„Ef þetta vígi fellur, þrátt fyrir sex ára baráttu heimamanna, eindregna andstöðu samfélagsins og þúsundir undirskrifta, vakna áleitnar spurningar um hver ráði í raun ferðinni þegar ákvarðanir eru teknar um náttúruauðlindir landsins. Hvers virði er samráð ef ekki er hlustað? Og hversu þungt vega almannahagsmunir þegar þeir rekast á fjárhagslega sérhagsmuni?“

Dagskrá á Austurvelli

Mótmælin eru haldin í samstarfi Landverndar, Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF) og Vá! – Félags um vernd fjarðar, ásamt breiðfylkingu náttúruverndarsamtaka.

Katrín Oddsdóttir lögfræðingur stýrir dagskránni á Austurvelli. Þar flytja Þorgerður María Þorbjörnsdóttir, formaður Landverndar, og Dýri Jónsson, Seyðfirðingur og athafnamaður, ávörp. Hljómsveitin Eva kemur einnig fram og streymt verður beint frá aðgerðum á Seyðisfirði.

Dagskráin á Austurvelli stendur í um 40 mínútur.

Mótmælin hefjast klukkan 15 í dag.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Sex öðrum hundum bjargað á svæðinu
Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

„Hvers virði er samráð ef ekki er hlustað?“
Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Loka auglýsingu