
Tilkynning barst lögreglunni á Hlemmi um pöddufullan einstaklinga sem gat ekki valdið sér og svaf ölvunarsvefni utandyra í morgun. Eftir að lögreglan flutti aðilann á lögreglustöðina fundust upplýsingar um hann og hvar hann ætti heima. Kom þá í ljós að hann bjó aðeins tveimur húsum frá þeim stað sem hann fannst og var honum því ekið aftur heim þar sem fjölskyldumeðlimur tók á móti honum. Sagt er frá málinu í dagbók lögreglunnar.
Einnig barst lögreglu tilkynning um mikinn hávaða og læti frá sameign í fjölbýlishúsi í hverfi 108. Skarst lögreglan í leikinn og vísaði einum aðila í burtu.
Þá var aðili handtekinn í verslun vegna ofbeldisfullrar hegðunar. Var hann laus úr haldi lögreglu eftir samtal á lögreglustöðinni.
Lögreglan sem starfar í Hafnarfirði og Garðabæ stöðvaði fjórar bifreiðar vegna gruns um akstur ökumanna undi áhrifum fíkniefna. Var einn þeirra sviptur ökuréttindum en hann reyndist einnig vera með hníf í bílnum.
