1
Minning

Bryndís Björg Guðmundsdóttir er látin

2
Innlent

Íranir ákærðir fyrir skjalafals

3
Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins

4
Innlent

Daníel endaði á sjúkrahúsi eftir hundsbit í Árbænum

5
Heimur

Ung kona opnar sig um ljósabekkjafíkn

6
Innlent

Stórar breytingar hjá Sýn

7
Heimur

Dóttir Peter Falk fannst látin í Los Angeles

8
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

9
Minning

Tristan Magni Hauksson er látinn

10
Fólk

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum

Til baka

Anna er ekki „púlari“ en ætlar að fagna með þeim í dag

„Þeir eru vel að titlinum komnir“

Anna Kristjánsdóttir
Anna KristjánsdóttirAnna heldur með Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps í enska boltanum

Anna Kristjánsdóttir ætlar að fagna mögulegum meistaratitli Liverpool í dag, þrátt fyrir að halda ekki með liðinu.

Hið fornfræga knattspyrnulið Liverpool FC, getur í dag tryggst sér Englandsmeistaratitilinn en Mo Salah og félögum hans dugar jafntefli á móti Tottenham en leikurinn fer fram í Bítlaborginni klukkan 15:30 að íslenskum tíma. Vélstjórinn og húmoristinn Anna Kristjánsdóttir segist í nýjustu dagbókarfærslu sinni ekki vera áhangandi Liverpool en ætli samt að fagna mögulegum titli þeirra í dag.

„Dagur 2084 – Ég er ekki púlari en samt.

Ég viðurkenni alveg að ég hefi aldrei haldið með Liverpool í enska boltanum, en lesendur mínar vita mætavel hvert er uppáhaldsliðið í enska boltanum sem gjarnan er kennt við bæ sem er þekktur fyrir framleiðslu sína á Quality Street eða Mackintosh hvar hetjurnar okkar í Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps eiga sinn heimavöll.“

Þannig hefst dagbókarfærsla Önnu sem hún birti í dag á Facebook. Segist hún ekki geta annað en fagnað með liðinu en viðurkennir að hún fái stundum hóstakast þegar þegar illa gengur hjá Liverpool.

„Það breytir ekki því að Liverpool eru búnir að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn þótt hann sé ekki orðinn formlegur. Ég get ekki annað en fagnað með þeim. Þeir eru vel að titlinum komnir og ekkert annað í myndinni en að fagna með þeim. Ég viðurkenni þó alveg að ég fæ stundum hóstakast að hætti Nenna vinar vors frá Akranesi þegar allt gengur á afturfótunum hjá Liverpool, en um leið er ég manneskja til að viðurkenna ósigurinn og óska þeim til hamingju með frábæran árangur. Við sem styðjum hetjurnar okkar í Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps höfum ólympísku hugsjónina að leiðarljósi, „það er ekki spurningin hver vinnur, aðalatriðið er að vera með“.“

Að lokum lýsir Anna restina af deginum sínum á paradísareyjunni Tenerife, þar sem hún hefur búið síðastliðin fimm ár.

„Ég reikna fastlega með því að fara á Nítjándu holuna í dag að afloknu pönnukökuáti á Nostalgíu og fylgjast með og samfagna nágranna mínum fyrir neðan mig, þ.e. ef Liverpool vinnur eða gerir jafntefli gegn liðinu sem er fyrir neðan „okkar fólk“ í enska boltanum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Myndband sýnir ótrúlega björgun föðurs
Myndband
Heimur

Myndband sýnir ótrúlega björgun föðurs

Stökk á lestarteinana og hélt barni sínu að sér á meðan lestin fór yfir þau
Patreksfirðingur ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsmanni
Innlent

Patreksfirðingur ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsmanni

Ungur maður alvarlega slasaður eftir fall á Lanzarote
Heimur

Ungur maður alvarlega slasaður eftir fall á Lanzarote

Tristan Magni Hauksson er látinn
Minning

Tristan Magni Hauksson er látinn

Marteinn Óli fær 70 milljónir í styrk
Innlent

Marteinn Óli fær 70 milljónir í styrk

Enginn fótur fyrir fullyrðingum um rán í Lágafellskirkju
Innlent

Enginn fótur fyrir fullyrðingum um rán í Lágafellskirkju

287 tilnefningar til Friðarverðlauna Nóbels
Heimur

287 tilnefningar til Friðarverðlauna Nóbels

Fjórir endaðu í Signu eftir umferðarslys í Frakklandi
Heimur

Fjórir endaðu í Signu eftir umferðarslys í Frakklandi

Kristín hefur áhyggjur af mögulegum stjórnmálaflokki innflytjenda
Pólitík

Kristín hefur áhyggjur af mögulegum stjórnmálaflokki innflytjenda

LeAnn Rimes frestar tónleikum vegna alvarlegra veikinda
Heimur

LeAnn Rimes frestar tónleikum vegna alvarlegra veikinda

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins
Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins

Tignarlegt einbýli í Árbænum til sölu
Myndir
Fólk

Tignarlegt einbýli í Árbænum til sölu

Nathan Lane rifjar upp erfiðasta samtal lífs síns
Heimur

Nathan Lane rifjar upp erfiðasta samtal lífs síns

Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins
Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins

Tónlistarmaðurinn vildi mæta en gat það því miður ekki
Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

Tignarlegt einbýli í Árbænum til sölu
Myndir
Fólk

Tignarlegt einbýli í Árbænum til sölu

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega
Myndir
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum
Myndir
Fólk

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

Loka auglýsingu