Eyþór Ingi Sighvatsson birti í gær myndband á samfélagsmiðlum af árekstri sem hann varð vitni að í Kauptún í Garðabæ í vikunni.
Eins og sést í myndbandinu má sjá blikkandi umferðarljós á gatnamótunum og veldur það ruglingi hjá ökumönnunum en annar bíllinn í myndbandinu er af gerðinni Toyota Yaris en hinn er Volvo. Samkvæmt færslu sem Eyþór setti með myndbandinu snéri hann við til að aðstoða og greindi frá því að konan sem ók Yaris-bifreiðinni hefði slasast. Þá hafi loftpúðar í hennar bíl ekki virkað en þeir hafi gert það í Volvo-bílnum.
Eyþór birti myndband í Facebook-hópnum Fávitar í umferðinni og er hann gagnrýndur af örfáum fyrir að hafa birt myndbandið en hann ver ákvörðun sína og standa flestir með Eyþóri í þeim efnum.


Komment