Bílaumboðið Askja hefur sent frá sér innköllum vegna KIA Sorento MQ4, EV9, EV5, EV4, EV3 og PV5 2025-2026.
Mælaborð ökutækis getur starfað hægar en eðlilegt getur talist vegna bilunar í rásarvörn. Gerist þetta vegna utanaðkomandi spennutruflana á meðan á akstri stendur. Fær ökumaður því ekki réttar upplýsingar um stöðu ökutækis eins og hraða þess.
Askja mun uppfæra hugbúnað mælaborðsins til þess að laga þessar truflanir. Eru eigendur ökutækja beðnir um að hafa samband við Öskju og bóka tíma.
Þá vill Askja benda viðskiptavinum sínum á að fyrirtækið bíður upp á innköllunargátt þar sem hægt er að fletta upp hvort innköllun hvíli á ökutækjum sem Askja hefur flutt inn.
Hafa ber í huga að ef ökutæki hefur verið flutt inn í einkainnflutningi er ekki víst að það komi fram á gáttinni.


Komment