
Morgunblaðið er í miklum vanda þessa dagana. Blaðið hefur tapað gríðarlegum upphæðum undanfarin ár. Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkona úr Vestmannaeyjum, hefur að miklu leyti staðið undir tapinu og þannig bjargað fyrirtækinu. Fullyrt er að hún og aðrir bjargvættir Moggans hafi nú fengið nóg og krafa sé uppi um að taprekstrinum ljúki. Undir liggur sú hótun að félagið fari í þrot ef ekki verði bætt úr skák. Guðbjörg situr í stjórn Árvakurs. Einhverjir hafa ráðlagt henni að sleppa höndinni af útgáfunni og láta loks ósýnilega hönd markaðarins ráða för.
Morgunblaðið hefur undanfarin ár verið að færast hratt í áttina að hægri öfgum. Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður og illræmdur spjallþáttastjórnandi, hefur sett mikinn lit á blaðið, rétt eins og Andrés Magnússon ritstjórnarfulltrúi sem er gjarnan önnum kafinn við að skrifa fréttir upp úr bróður sínum, Kjartani Magnússyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og vega að ríkisstjórnarflokkunum. Nýleg frétt með fyrirsögn um að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra svari ekki bréfi er dæmi um slíkt. Um var að ræða bréf sem hagsmunasamtök úti í bæ höfðu skrifað.
Moggamenn hafa gert fjölda mistaka undanfarið sem fara fyrir brjóstið á hluthöfum. Síðasta axarskaft þeirra var að reka hina vinsælu Kolbrúnu Bergþórsdóttur blaðamann sem var eitt helsta mótvægið við hægri öfgana á blaðinu. Aðrar uppsagnir á blaðinu þykja vísbending um að stjórnendur geri sér grein fyrir því að þeir séu á brún hengiflugsins ...
Komment