1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

4
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

7
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

8
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Stefán Pálsson spyr um tvöfalt siðgæði í umræðu um vopnasendingar

„Eiga Palestínumenn síður rétt á verja sig en fólkið í Úkraínu?“

Stefan-Palsson
Stefán PálssonSagnfræðingurinn svarar gagnrýninni

Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson veltir upp spurningum um tvöfalt siðgæði í umræðu um stríð, vopnasendingar og sjálfsvarnarrétt þjóða í Facebook-færslu sem hann birti í gærkvöldi. Þar fjallar hann um viðbrögð sem hann fékk eftir að hafa lýst þeirri skoðun sinni að Ísland ætti ekki að styðja baráttu Úkraínu með vopnakaupum og ber saman við afstöðu sína til stríðsins á Gaza.

Í færslunni rifjar Stefán upp að hann hafi daginn áður sett fram þessa afstöðu og að viðbrögðin hafi ekki látið á sér standa. „Í gær skrifaði ég stöðufærslu þar sem ég lýsti þeirri skoðun að Ísland ætti ekki að styðja baráttu úkraínsku þjóðarinnar með því að kaupa vopn. Þetta kallaði á fyrirsjánleg viðbrögð.“ Hann segir að gagnrýnin hafi verið af ýmsum toga. „Allnokkrir gagnrýndu mig fyrir að skorta veruleikatengingu og aðrir sendu hæðnislegar athugasemdir um að ég vildi bara senda ljóð og lopapeysur á móti stríðsvél Rússa. Við friðarsinnar erum svo sem vanir svona svörum.“

Stefán bendir á að stríðið í Úkraínu sé þó ekki eini harmleikurinn sem heimurinn hafi orðið vitni að undanfarið. „En hið ömurlega stríð í Úkraínu er ekki eini harmleikurinn sem við höfum horft uppá síðustu misserin.“ Hann nefnir sérstaklega ástandið í Palestínu og gagnrýnir aðgerðir Ísraels harðlega. „Í Palestínu höfum við fylgst með herveldi Ísraels myrða saklausa borgara í tugþúsundatali og brjóta um það bil öll alþjóðalög og mannréttindasáttmála í leiðinni.“

Hann segir að afstaða sín hafi verið skýr frá upphafi stríðsins á Gaza. „Frá fyrsta degi stríðsins á Gaza fordæmdi ég ofbeldið og kallaði eftir friði.“ Hann undirstrikar þó að sú friðarafstaða hafi aldrei falið í sér stuðning við vopnavæðingu. „En í samræmi við friðarhugsjón mína datt mér aldrei í hug að lausnin væri sú að kalla eftir því að Palestínumönnum yrðu send stærri og betri vopn til að verja sig fyrir ofureflinu.“ Hann bætir við að hann þekki þó fólk sem hafi verið ósammála honum í því efni. „Ég þekki samt alveg Palestínuvini sem töldu það einu lausnina.“

Í lok færslunnar setur Stefán fram spurningar um samkvæmni í umræðunni um stríð og sjálfsvarnarrétt. „Mig grunar að fæst af fólkinu sem telur mig flón fyrir að vilja ekki leysa Úkraínustríðið með því að senda þangað fleiri vopn hefði skrifað upp á að lausnin á stríðinu í Gaza væri að vígvæða Palestínumenn.“ Hann spyr þá beint: „En í hverju liggur þá munurinn? Eiga Palestínumenn síður rétt á verja sig en fólkið í Úkraínu?“ og lýkur með vangaveltu um hvort grundvallarviðmið breytist eftir aðstæðum. „Eða eru prinsipin varðandi stríð og sjálfsvarnarrétt sveigjanleg eftir því hverjir eiga í hlut, hver andstæðingurinn sé eða hvernig styrkleikamuninum er háttað?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu