1
Fólk

Anna Kristjáns svikin af íslenskri konu á Tenerife

2
Minning

Árni Árnason er fallinn frá

3
Heimur

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí

4
Landið

Sérfræðilæknir fær ekki vinnu á Íslandi

5
Innlent

Faðir dæmdur fyrir að ráðast á dóttur sína

6
Fólk

Selja stórfenglega Vesturbæjarperlu fyrir háa upphæð

7
Menning

Ofbeldi og erótík í Breiðholti

8
Heimur

Emma Watson sögð í sambandi með milljarðamæringi

9
Innlent

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður

10
Heimur

Segir Bandaríkin og Ísrael þegar hafa tapað stríðinu við Íran

Til baka

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn

Kjartan og Marta ganga til liðs við Miðflokkinn

Marta Guðjónsdóttir
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúiHefur lengi starfað í Sjálfstæðisflokknum
Mynd: Víkingur

Í yfirlýsingu sem Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa sent frá sér greina þau frá því að þau hafi yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn og hafi gengið til liðs við Miðflokkinn.

Í yfirlýsingunni segja borgarfulltrúarnir helstu ástæðuna vera afstaða flokksins gagnvart Borgarlínunni en tekist hefur verið harðlega innan flokksins á undanförnum árum um hana.

Yfirlýsingin

Við undirrituð höfum ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Ástæðan er sú að við teljum Miðflokkinn mun líklegri en Sjálfstæðisflokkinn til að vinna að meginmarkmiðum okkar í borgarmálum.

Á þetta ekki síst við um samgöngumál. Svokölluð borgarlína hefur verið eitt helsta áherslumál vinstri flokkanna á undanförnum árum undir forystu Samfylkingarinnar. Hins vegar hefur verið kvartað yfir því að stefna Sjálfstæðisflokksins í málinu sé í besta falli óljós. 

Borgarlínan yrði risavaxin opinber framkvæmd, sem hefði ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér vegna mikils kostnaðar, skattahækkana og aukinna umferðartafa. Hægt væri að stórefla núverandi strætisvagnakerfi með margfalt minna fé en fyrirhugað er að setja í borgarlínuverkefnið. Slíkar umbætur á strætókerfinu er hægt að ráðast í strax í stað þess að bíða í a.m.k. hálfan áratug eftir rándýrri og ófjármagnaðri borgarlínu. 

Kostnaður vegna framkvæmdahluta borgarlínu mun sennilega nema hundruðum milljarða króna. Slík risaframkvæmd verður ekki fjármögnuð nema með auknum álögum á borgarbúa. Meðal annars á að fjármagna verkefnið með umferðargjaldi er koma á til viðbótar háum gjöldum, sem þegar eru innheimt af umferð. Slíkar viðbótarálögur munu líklega koma harðast niður á íbúum í eystri hverfum borgarinnar. Þeir stjórnmálamenn, sem styðja borgarlínu, eru því í raun að kalla eftir verulegum skatta- og gjaldahækkunum. 

Skiptar skoðanir hafa verið um borgarlínu meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Meirihluti borgarfulltrúa flokksins hefur verið andvígur verkefninu eða fjórir af sex. Sú andstaða er í samræmi við skoðun meirihluta sjálfstæðismanna í borginni. 

Miðflokkurinn hefur hins vegar tekið rétta og skýra afstöðu í afstöðunni til borgarlínu og í mörgum öðrum málum eins og margoft hefur komið fram í máflutningi kjörinna fulltrúa flokksins. Við teljum okkur því eiga samleið með Miðflokknum. 

Við höfum bæði starfað lengi í Sjálfstæðisflokknum og eigum þar fjölmarga góða vini og kunningja. Við þökkum þeim fyrir samstarfið, sem oftast hefur verið gott, og óskum Sjálfstæðisflokknum velfarnaðar. 

Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
Mynd: Facebook
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

„Rassfæðingar“-nashyrningurinn úr Ace Ventura fer á uppboð
Heimur

„Rassfæðingar“-nashyrningurinn úr Ace Ventura fer á uppboð

Talið er að hann gæti selst á um milljón krónur
Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna
Innlent

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna

Ný skjöl í Epstein-málinu innihalda ásakanir gegn Trump
Heimur

Ný skjöl í Epstein-málinu innihalda ásakanir gegn Trump

Lögreglan lýsir eftir manni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir manni

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður
Innlent

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí
Heimur

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí

MAST varar neytendur við ákveðnum pálmasykri
Innlent

MAST varar neytendur við ákveðnum pálmasykri

Styður þú áframhaldandi viðræður Íslands við ESB?
Könnun
Pólitík

Styður þú áframhaldandi viðræður Íslands við ESB?

Bróðir Áslaugar Örnu byrjar með stjórnmálahlaðvarp
Fólk

Bróðir Áslaugar Örnu byrjar með stjórnmálahlaðvarp

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður
Pólitík

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður

Ung kona faldi metamfetamín í hátalara
Innlent

Ung kona faldi metamfetamín í hátalara

Pólitík

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn

Kjartan og Marta ganga til liðs við Miðflokkinn
Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran
Pólitík

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran

Styður þú áframhaldandi viðræður Íslands við ESB?
Könnun
Pólitík

Styður þú áframhaldandi viðræður Íslands við ESB?

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður
Pólitík

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði
Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan
Pólitík

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan

Loka auglýsingu