Borgarstjórn samþykkti í dag ályktun þar sem þau sem vistuð voru sem börn á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á árunum 1974 til 1979 og fjölskyldur þeirra eru beðin afsökunar á þeirri meðferð sem lýst var í skýrslu vöggustofunefndar.
Ályktunin í heild er svohljóðandi:
Borgarstjórn biður öll þau sem vistuð voru sem börn á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á árunum 1974 til 1979 og fjölskyldur þeirra afsökunar á þeirri meðferð barnanna sem lýst var í skýrslu vöggustofunefndar. Þrátt fyrir að vöggustofubörnin hafi ekki sætt illri meðferð í skilningi laganna, þá var vissum þáttum varðandi meðferð barnanna ábótavant. Þar má nefna að ekki var hugað að því með faglegri vinnu eða greiningum að mæta sérþörfum barna, svo sem þeirra sem voru fötluð, þeirra sem voru eldri og þeirra sem komu úr sérstaklega erfiðum aðstæðum eða voru vistuð oft. Dæmi eru um að barn hafi verið vistað í fjögur á ár vöggustofunni og elsta barnið sem var vistað var 15 ára.
Afdrif vöggustofubarnanna eru sláandi. Af þeim 149 börnum sem dvöldu á vöggustofunni í einn mánuð eða lengur eru 60 skráð öryrkjar eða 40,3% en hlutfall meðal jafnaldra er 20%. Þá er dánartíðni umtalsvert hærri á meðal fyrrum vöggustofubarna eða 13,4% borið saman við einungis 4,8% hjá jafnöldum.
Borgarstjórn vill þakka vöggustofunefndinni fyrir umfangsmikla, vandaða og vel rökstudda skýrslu. Borgarstjórn er einnig þakklát hvatamönnum þess að ráðist var í gerð beggja vöggustofuskýrslnanna, þeim Árna H. Kristjánssyni, Fjölni Geir Bragasyni, Hrafni Jökulssyni, Tómasi V. Albertssyni og Viðari Eggertssyni. Tveir af þessum heiðursmönnum eru fallnir frá.
Borgarstjórn tekur heilshugar undir tillögur vöggustofunefndar og vinnsla þeirra er þegar í farvegi, m.a. um að Reykjavíkurborg tryggi vöggustofubörnum geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu þeim að kostnaðarlausu líkt og gert var þegar fyrri vöggustofuskýrslan kom út 2023.
Borgarstjórn skorar jafnframt á dómsmálaráðuneyti að ljúka við gerð frumvarps um sanngirnisbætur sem fyrst til að leitast við að skýra leiðir til að rétta hlut þeirra einstaklinga sem vistaðir voru á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í formi skaðabóta.

Komment