1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

3
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

4
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

5
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

6
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

7
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

8
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

9
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

10
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

Til baka

Ekki hægt að slá föstu að illa hafi verið farið með börn á Vöggustofu

Skýrsla um Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins kynnt

Vöggustofa
Skýrsla Vöggustofunefndar var kynnt í dagVöggustofunefnd ásamt borgarstjóra og fulltrúum Réttlætis
Mynd: Reykjavíkurborg

Sjálfstæð og óháð nefnd, sem Reykjavíkurborg skipaði til að kanna starfsemi Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins á árunum 1974 til 1979, kynnti í dag niðurstöður sínar. Um er að ræða framhaldsathugun sem gerð var í kjölfar fyrri skýrslu um starfsemi vöggustofa í Reykjavík á árunum 1949–1973.

Niðurstöður nefndarinnar eru í meginatriðum þríþættar. Í fyrsta lagi segir í skýrslunni að ekki verði slegið föstu að börn sem dvöldu á vöggustofunni á tímabilinu 1974–1979 hafi sætt illri meðferð í skilningi laga nr. 45/2022. Í öðru lagi kemur fram að málsmeðferð barnaverndaryfirvalda við ákvarðanir um vistun barna á stofnuninni hafi oft ekki verið í samræmi við gildandi lög. Í þriðja lagi er bent á að opinbert eftirlit með starfseminni hafi verið afar takmarkað og ekki í samræmi við lagakröfur á þessum tíma.

Alls dvöldu 236 börn á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á árunum 1974–1979. Börn voru ekki vistuð þar eftir febrúar 1979, en þá var stofnunin sameinuð Vistheimili barna að Dalbraut 12 í Reykjavík.

Nefndin telur að aðstæður barna, aðbúnaður, umönnun og möguleikar foreldra til heimsókna hafi verið með betri hætti á þessu tímabili en á árunum fyrir 1967, sem fjallað var um í fyrri skýrslu. Athugunin bendir jafnframt til þess að þá hafi ekki lengur verið við lýði starfshættir sem almennt settu starfsfólki skorður í umönnun barna eða takmörkuðu sérstaklega möguleika þess til að sinna þörfum einstakra barna.

Þrátt fyrir þetta kemur fram að ýmsum þáttum hafi verið ábótavant. Næturvaktir virðast hafa verið fáliðaðar miðað við aldur og þarfir barnanna, og almennt hafi skort faglega greiningu og vinnu til að mæta sérþörfum barna, svo sem barna með fötlun, eldri barna, barna sem komu úr erfiðum aðstæðum eða voru vistuð ítrekað. Þá kemur fram að í sumum tilvikum hafi börn dvalið mjög lengi á vöggustofunni.

Í skýrslunni er einnig sérstaklega fjallað um afdrif barnanna sem vistuð voru á stofnuninni á umræddu tímabili. Þar má finna upplýsingar um hversu mörg börn voru síðar vistuð á öðrum stofnunum eða fóru í fóstur, auk upplýsinga um dánartíðni og tíðni örorku innan hópsins.

Nánari upplýsingar um niðurstöður nefndarinnar, afdrif barnanna og tillögur um úrbætur er að finna í skýrslu nefndarinnar, sem er aðgengileg í heild sinni á vef Reykjavíkurborgar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Hvarf sporlaust í desember árið 2020
Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Flugvél nauðlenti í New York
Myndband
Heimur

Flugvél nauðlenti í New York

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Innlent

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni
Myndir
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Ræktanirnar voru nokkuð stórar og ætluð til sölu og dreifingar
Arnar Már hrækti á lögreglumann
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

Loka auglýsingu