Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir Morgunblaðið harðlega í Facebook-færslu sem hann birti í morgun og segir blaðið beita sér pólitískt gegn ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.
Í færslunni segir Dagur að umfjöllun blaðsins um forsætisráðherrann sé ekki tilviljunarkennd heldur tengist hagsmunum.
„Takið eftir því að nú er Mogginn farinn að birta svipljótar (fyrirgefið orðavalið) af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Ástæðan er ekki sú að það sé ekki til fjöldi góðra mynda af Kristrúnu, frá í gær og alla aðra daga. Nei, það er vegna þess að ríkisstjórn hennar er farin að ógna sérhagsmunum.“
Hann segir jafnframt að blaðið standi vörð um ákveðna hagsmuni í atvinnulífinu.
„Mogginn stendur sem kunnugt er vörð um stórfyrirtæki í sjávarútvegi og tengda fákeppni á fjölmörgum sviðum. Þá sem hafa tögl og hagldir í íslensku atvinnulífi.“
Segir blaðið beita sér pólitískt
Dagur vísar einnig til skrifa stjórnarformanns Morgunblaðsins og telur þau staðfesta að blaðið hafi tekið virkan þátt í stjórnmálum.
„Það var athyglisverð játning í skrifum stjórnarformanns Morgunblaðsins í blaðinu á föstudaginn. Þar sagði hann óumdeilt að Morgunblaðið ætti „stóran þátt í algeru hruni“ ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur í þingkosningunum 2013,“ skrifar hann og bætir síðar við: „Ég man ekki eftir að það hafi verið sagt svo berum orðum.“
Hann segir þetta sýna að stjórnarformaðurinn líti á það sem hlutverk blaðsins að hafa áhrif á stjórnmál.
„Það sem vekur athygli mína er að stjórnarformaðurinn lítur á það sem hlutverk blaðsins að beita sér flokkspólitískt, þá og nú.“
Styður þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB
Í færslunni fjallar Dagur einnig um þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Hann segir umræðuna hafa sýnt að erfitt sé að færa rök gegn því að þjóðin fái að segja sitt álit.
„Umræðurnar endurspegluðu að það er erfitt að færa málefnaleg rök gegn því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið,“ skrifar hann. Bæti hann síðar við: „Stjórnarandstaðan skautaði létt yfir þá staðreynd að nánast allir flokkar á Alþingi hafi lofað því í kosningum að þjóðin ætti að ráða úrslitum um næstu skref varðandi aðildarumsóknina.“
Dagur gagnrýnir stjórnarandstöðuna og segir hana hafa brugðist ókvæða við hugmyndinni um að almenningur komi að ákvörðuninni.
„Þrátt fyrir þessa forsögu braust fram í umræðunni ólund út í þá hugmynd að almenningur komi að málum.“
Telur ESB-aðild styrkja efnahag
Dagur telur að aðild að Evrópusambandinu geti haft jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf, meðal annars með lægri vöxtum.
„Hár fjármagnskostnaður vegna vaxta og verðbólgu á Íslandi er landsins forni fjandi. Það er eitt stærsta hagsmunamál fyrirtækja og heimila að ná fram evruvöxtum,“ skrifar hann.
Hann segir einnig að upptaka evru gæti skilað betri kjörum fyrir íslenskt hagkerfi og aukið samkeppni.
Að lokum segir Dagur að mikilvægt sé að þjóðin fái að taka afstöðu til málsins.
„Þjóðaratkvæðagreiðslan er því mikilvægt og jákvætt mál. Og ég ætla að segja já.“


Komment