
Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, lést á heimili sínu í gær, 78 ára að aldri.
Frá þessu greinir Morgunblaðið.
Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948 en hann var um áratugaskeið einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins. Hann var kjörinn í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1974 og sat þar til 1994, þar af sem borgarstjóri á árunum 1982 til 1991.
Árið 1991 var hann kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og sama ár náði hann kjöri á Alþingi og tók við embætti forsætisráðherra, sem hann gegndi til ársins 2004. Hann var einnig utanríkisráðherra frá 2004 til 2005.
Davíð lét af störfum sem ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins árið 2005 og tók þá við embætti seðlabankastjóra, sem hann gegndi til 2009. Að því loknu hóf hann störf sem ritstjóri Morgunblaðsins og sinnti því starfi allt til dánardags.
Eftirlifandi eiginkona hans er Ástríður Thorarensen. Hann lætur einnig eftir sig einn son.
Komment