Einstaklega vel hannað og fjölskylduvænt einbýlishús við Frjóakur 8 í Akrahverfi í Garðabæ hefur verið sett á sölu, þar sem óskað er eftir tilboðum í eignina.
Húsið er skráð 270 fermetrar samkvæmt fasteignaskrá HMS, auk 18,6 fermetra garðstofu. Þar af er bílskúr 39 fermetrar en íbúðarhluti hússins sjálfs 231,4 fermetrar. Eignin er öll á einni hæð og státar af afar góðu skipulagi.
Húsið stendur innarlega í botnlanga á skjólsælum stað við grænt útivistarsvæði, þar sem finna má leiksvæði auk körfu- og fótboltavalla. Staðsetningin þykir sérlega fjölskylduvæn, enda er stutt í helstu skóla í hverfinu, þar á meðal leikskólann Akra, Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Þá eru íþróttasvæði og sundlaug einnig í göngufæri.
Eignin var reist árið 2007 en gekkst undir umfangsmikla endurnýjun að innan árið 2015. Endurhönnunin var unnin af innanhússarkitektinum Berglindi Berndsen og einkennist af vönduðum innréttingum og smekklegu efnisvali sem skapa nútímalegt og glæsilegt heimili þar sem þarfir fjölskyldunnar eru í fyrirrúmi.
Skipulag hússins er rúmgott og vel útfært, með forstofu, fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Þá eru stórar og bjartar stofur, eldhús, garðstofa, þvottahús, bakdyrainngangur og innangengt í bílskúr, sem eykur enn frekar þægindi daglegs lífs.


Komment