1
Heimur

Frjósemisklíník klúðraði glasafrjóvgun

2
Pólitík

Ungir Sjálfstæðismenn ráðast gegn Ingu Sæland í myndskeiði

3
Innlent

Vara við notkun á glösum úr Flying Tiger

4
Heimur

Leit hafin eftir að konu og hundi sem sópuðust út á sjó á Tenerife

5
Fólk

Það stefnir allt í kojufyllirí hjá Önnu Kristjáns

6
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

7
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

8
Innlent

Stefán gagnrýnir hugmyndir um „rannsóknardómstól“ vegna séra Friðriks

9
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

10
Innlent

Listería í íslenskum grænmetisbollum

Til baka

Fangar ánægðir með Jóa Fel

Erfitt er fyrir fanga að kaupa nóg af næringarríkum mat að sögn formanns Afstöðu

Litla Hraun
Litla-Hraun er þekktasta fangelsi ÍslandsJói Fel vann í sumar sem kokkur þar á bæ
Mynd: Víkingur

Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, vann nú í sumar við það að elda fyrir starfsfólk og fanga á Litla-Hrauni en lýsti hann starfinu í viðtali á Vísi í síðustu viku. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir í samtali við Mannlíf að almenn ánægja hafi verið með störf Jóa en yfirvöld þurfi að gera betur til að tryggja föngum næringarríkan mat.

„Föngum í íslenskum fangelsum finnst almennt matarmál skipta miklu máli og eru sammála um að kostnaður og aðgengi hamli því að hægt sé að stuðla að mannsæmandi mataræði,“ sagði Guðmundur við Mannlíf um matarmál í íslenskum fangelsum.

„Á Litla Hrauni fá fangar matarpeninga og sjá sjálfir um innkaup og matseld en verðlagning verslunar fangelsisins er hærri en í almennum verslunum og því erfitt að kaupa nægan og næringarríkan mat. Flestir mynda matarhópa til að spara en fæðisféð, sem er 1.700 krónur á dag, dugir oft skammt.“

Kaupmáttur hefur rýrnað

Guðmundur segir að það sé talsverður munur á matarmálum í íslenskum fangelsum. „Á Kvíabryggju og Sogni starfa fangar í eldhúsi og elda fyrir bæði aðra fanga og starfsfólk. Oft er það með mikilli fagmennsku ef kunnátta er til staðar en það getur auðvitað breyst reglulega. Á Litla Hrauni elda fangar sjálfir fyrir sig, nema þeir sem eru í einangrun eða geta ekki eldað mat.“

En hver er munurinn á þessum málum í dag og fyrir tíu árum?

„Helsta breytingin er sú að kaupmáttur fanga hefur rýrnað mjög á síðustu tíu árum þar sem fæðisfé hefur lítið sem ekkert hækkað miðað við verðlag og neysluviðmið,“ segir formaðurinn. „Þrátt fyrir að fangar reyni að skipuleggja innkaup í matarhópum er erfiðara en áður að fá nóg af næringarríkum mat í afplánun.“

Hélt námskeið fyrir fanga

Guðmundur segir að Afstaða vilji sjá hækkun á fæðisfé og dagpeningum í samræmi við raunkostnað og neysluviðmið, svo fangar geti notið fjölbreytts matarræðis, og aðgengi að ferskum og næringarríkum mat þurfi að vera tryggt, ásamt því að lækka álagningu á matvöru í fangelsisversluninni. 

„Varðandi Jóa Fel þá sá hann almennt um að elda fyrir starfsfólk, einangrun og fanga sem ekki geta eldað sjálfir,“ sagði Guðmundurinn um stjörnukokkinn á Litla-Hrauni.  „Jói hélt samt ýmis námskeið og aðstoðaði fanga á öryggisgangi með að læra að bjarga sér. Almenn ánægja var með allt sem Jói kom að og vonandi mun hann koma meira að matseld í fangelsum í framtíðinni en hann var tímabundið ráðinn síðasta sumar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Landsbankinn mokar inn peningum
Peningar

Landsbankinn mokar inn peningum

„Það er mikilvægt að betra jafnvægi náist í efnahagslífinu“
Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu
Innlent

Laugardalsmaður dæmdur fyrir hylmingu

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur
Skoðun

Davíð Már Sigurðsson

Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum
Innlent

Ákærður fyrir skjalafals og brot á útlendingalögum

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista
Myndir
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla
Innlent

Lögreglan gerir athugasemd við orðanotkun fjölmiðla

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna
Innlent

Maður varð fyrir hrottalegri hópárás ungmenna

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku
Heimur

Rússneskur hermaður myrti konu eftir fimm klukkustunda gíslatöku

Frjósemisklíník klúðraði glasafrjóvgun
Heimur

Frjósemisklíník klúðraði glasafrjóvgun

Fréttamaðurinn Don Lemon handtekinn vegna mótmæla gegn ICE
Myndband
Heimur

Fréttamaðurinn Don Lemon handtekinn vegna mótmæla gegn ICE

Listería í íslenskum grænmetisbollum
Innlent

Listería í íslenskum grænmetisbollum

Vara við notkun á glösum úr Flying Tiger
Innlent

Vara við notkun á glösum úr Flying Tiger

Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista
Myndir
Fólk

Rándýr Vesturbæjarperla á sölulista

Það stefnir allt í kojufyllirí hjá Önnu Kristjáns
Fólk

Það stefnir allt í kojufyllirí hjá Önnu Kristjáns

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum
Fólk

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu
Fólk

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu

Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu
Myndir
Fólk

Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu

Loka auglýsingu