
Lögreglu bárust fjölmargar tilkynningar í dag þar sem meðal annars var óskað eftir aðstoð vegna innbrota, þjófnaða og ofbeldisatvika.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í skrifstofuhúsnæði vegna einstaklings sem neitaði að yfirgefa skrifstofu tilkynnanda. Viðkomandi yfirgaf þó staðinn þegar hann frétti að lögregla væri á leiðinni á vettvang.
Tilkynningar bárust einnig um innbrot í geymslu í fjölbýlishúsi, auk innbrots í grunnskóla og í heimahús.
Þá var lögregla kölluð til vegna alvarlegs atviks þar sem einstaklingur reyndi að stinga tilkynnanda. Tókst tilkynnanda að koma sér undan og var árásarmaðurinn handtekinn á vettvangi og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar.
Lögreglu bárust einnig þrjár tilkynningar um þjófnað úr verslunum. Í tveimur tilvikum voru grunaðir látnir lausir að lokinni skýrslutöku en í einu tilviki náði grunaður að hlaupa undan starfsmönnum verslunarinnar.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í strætisvagni vegna ölvaðs einstaklings sem féll á gólf vagnsins. Ekki liggur fyrir hvort slysið hafi valdið alvarlegum meiðslum.
Einnig var óskað eftir aðstoð lögreglu við að vísa einstaklingi út af stigagangi fjölbýlishúss, en hann var farinn þegar lögreglu bar að garði.
Að auki var tilkynnt um slagsmál tveggja nemenda í grunnskóla. Ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsli.

Komment