
Ný könnun meðal íslenskra fasteignasala sem framkvæmd var af íslenska fyrirtækinu Questionaire sýnir að keðjuviðskipti eru orðin normið frekar en undantekning á fasteignamarkaðnum. Meirihluti svarenda segir að yfir helmingur allra viðskipta séu háð öðrum sölum, sem leiðir til mikilla tafa, frestana og endursamninga.
Könnunin, sem lauk þann 27. september 2026, varpar ljósi á umfangsmikinn vanda sem fylgir því þegar kaup á einni eign eru háð sölu á annarri. Alls sögðu 56% fasteignasala að meira en helmingur viðskipta hjá þeim væru keðjuviðskipti, og tæpur þriðjungur telur að það eigi við um rúmlega 75% tilfella.
Tafir og endursamningar fremur en hrun
Þótt keðjurnar valdi miklum höfuðverk virðist markaðurinn seigur við að halda þeim saman. Aðeins 28% fasteignasala segja að keðjurnar slitni oft.
Hins vegar upplifa 60% svarenda að keðjur tefjist, slitni eða að endursemja þurfi um þær oft eða mjög oft. Vandinn vex til muna eftir því sem keðjurnar lengjast. Í dæmigerðum keðjum, þar sem eignirnar eru þrjár eða færri, segja 48% vandræði algeng. Þar sem keðjurnar lengjast í fjórar eignir eða fleiri stökkva þessar líkur upp í 80%.
Verðlagning stærsta hindrunin, ekki bankarnir
Þvert á það sem margir kynnu að ætla eru það ekki lánastofnanir eða greiðslumat sem tefja ferlið mest. Algengasta skýringin á vandanum er of hátt verð eða óraunhæfar væntingar seljenda aftar í keðjunni (15 af 39 tilnefningum). Í öðru sæti eru eignir sem hreinlega seljast ekki (13 tilnefningar) og fjármögnun og greiðslumat koma þar á eftir (10 tilnefningar).
Skiptar skoðanir á lausnum
Fasteignasalar eru klofnir í tvær fylkingar þegar kemur að því hvernig eigi að leysa þessa flækju:
- Rýmri reglur og brúarlán: Stærri hópurinn (15 af 34) vill brúa bilið með rýmri greiðslumötum, brúarlánum og að Seðlabankinn endurskoði reglur sínar um greiðslubyrði.
- Hætta keðjuviðskiptum: Minni hópurinn (8 af 34) vill hreinlega afnema keðjur og hvetja fólk til að selja fyrst og kaupa svo.
Hóparnir eru þó sammála um eitt lykilatriði: verðlagning eigna verður að vera raunhæf og kaupendur þurfa að vita nákvæmlega hvað þeir ráða við áður en tilboð er gert.
Um könnunina: Könnunin var send á 515 fasteignasala og svöruðu 43 þeirra (8,3% svarhlutfall). Niðurstöðurnar ber að lesa sem sjónarmið þeirra sem svöruðu en ekki sem tölfræðilegt mat á fasteignamarkaðnum í heild.
