Kanarí hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn fjölbreyttasti og mest heillandi áfangastaður ferðamanna í Evrópu. Þrátt fyrir að margir komi þangað með hugmyndir um hefðbundna strandfrí, kemur eyjan sífellt á óvart með ótrúlegri náttúrufegurð, sögulegum bæjum og fjölbreyttri upplifun sem minnir fremur á heila heimsálfu en eina eyju.
Mannlíf hefur tekið saman fjóra staði sem allir sem heimsækja Kanarí ættu að sjá
Roque Nublo
Eitt helsta kennileiti eyjarinnar er Roque Nublo, sem rís tignarlega yfir miðju eyjarinnar í nágrenni við Tejeda. Þessi stórbrotna klettamyndun, sem á rætur sínar að rekja til eldfjallavirkni, býður upp á vinsæla gönguleið sem hentar flestum. Útsýnið af svæðinu er einstakt og nær yfir stóran hluta eyjarinnar, þar sem samspil fjalla og sjávar skapar eftirminnilega upplifun.
Puerto de Mogán
Á suðvesturhluta eyjarinnar má finna hinn heillandi bæ Puerto de Mogán, sem oft er líkt við ítölsku Rivíeruna. Litríkar byggingar, blómaskreyttar götur og friðsælt andrúmsloft gera bæinn að vinsælum áfangastað þeirra sem leita að rólegri upplifun. Þrátt fyrir aukinn ferðamannastraum hefur bærinn haldið í sjarma sinn og er enn starfandi fiskihöfn þar sem lífið gengur sinn vanagang.
Las Canteras-ströndin
Í höfuðborg eyjarinnar, Las Palmas, er að finna eina af bestu ströndum Spánar, Las Canteras-ströndina. Ströndin er þekkt fyrir gullinn sand, tæran sjó og náttúrulegt rif sem ver hana fyrir öldugangi. Svæðið er líflegt allan daginn, með fjölbreyttu úrvali veitingastaða og gönguleiða sem laða að bæði heimamenn og ferðamenn.
Tejeda
Tejeda er eitt fallegasta fjallaþorp Spánar, sérstaklega á vorin þegar möndlutrén blómstra og lita dalinn í hvítum og bleikum tónum. Þorpið er einnig þekkt fyrir hefðbundið sælgæti á borð við möndlumarsípan og „bienmesabe“, sem hefur lengi verið hluti af matarmenningu eyjarinnar.


Komment