
Szymon Kalinowski hefur verið dæmdur í fangelsi en mál hans var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hann var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa flutt inn og reynt að taka við 991,63 grömm af kókaíni, með 86–88% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru falin í fjórum pakkningum í hliðum pappakassa sem kom hingað til lands með póstsendingu frá Belgíu þriðjudaginn 5. desember 2023 og var ákærði skráður móttakandi sendingarinnar. Lögregla lagði hald á fíkniefnin á starfsstöð Tollgæslunnar að Stórhöfða 32 í Reykjavík og skipti þeim út fyrir gerviefni. Kalinowski fékk annan mann til að sækja fyrir sig sendinguna á póstmiðstöðina við Síðumúla 3–5 í Reykjavík, án þess að upplýsa hann um fíkniefnin. Maðurinn sótti sendinguna mánudaginn 11. desember 2023 og keyrði með hana í bifreið sinni að heimili sínu í Reykjavík en lögregla handtók manninn síðar sama dag og fann pakkann í bifreiðinni.
Kalinowski neitaði sök og sagðist hafa verið að gera ónefndum vini sínum greiða og talið að föt væru í pakkanum. Framburður hans þótti ótrúverðugur.
Hann var á endanum dæmdur í fangelsi í 14 mánuði. Þá þarf hann að greiða verjanda sínum 1.400.000 krónur, og 918.256 krónur í annan sakarkostnað.
Komment