
Samkvæmt nýjustu mælingum rússnesku skoðanakönnunarstofnunarinnar Russian Public Opinion Research Center hefur fylgi við forsetann Vladimir Putin haldið áfram að lækka.
Í vikunni 30. mars til 5. apríl mældist stuðningur við hann 67,8 prósent, sem er 2,3 prósentustiga lækkun frá fyrra mælitímabili, 19.–22. mars, samkvæmt upplýsingum á vef stofnunarinnar.
Fylgi Putins hefur ekki verið svona lágt síðan áður en Rússland hóf innrás sína í Úkraínu. Í síðustu könnun fyrir stríð, sem framkvæmd var dagana 14.–20. febrúar 2022, mældist stuðningurinn 64,3 prósent. Á árunum þar á eftir fór hann aldrei niður fyrir 70 prósent.
Samkvæmt VTsIOM fór fylgið fyrst niður fyrir það sem mældist fyrir stríð um miðjan mars.
Önnur rússnesk skoðanakönnunarstofnun, Public Opinion Foundation, sem starfar náið með forsetaskrifstofunni, hefur einnig skráð lækkun í stuðningi við forsetann. Könnun sem gerð var í lok mars sýndi að 74 prósent aðspurðra voru ánægð með störf hans, sem er lægsta niðurstaða í eitt ár. Í nýrri könnun dagana 3.–5. apríl hækkaði sú tala lítillega, í 75 prósent.
Athygli vekur að báðar stofnanir birtu vikulegar mælingar sínar í dag, 10. apríl nokkrum klukkustundum síðar en venjulega.
Stjórnmálaráðgjafi sem starfar með forsetaskrifstofu Rússlands sagði í samtali við Meduza að fylgið væri á niðurleið. Hann nefndi meðal annars gremju almennings vegna takmarkana á Telegram og skerðingar á aðgengi að farsímaneti sem mögulegar ástæður, en tók fram að fleiri þættir spiluðu inn í.
Hann sagði erfitt að meta nákvæmlega hvaða áhrif netaðgerðirnar hefðu haft: „Of margt neikvætt er að gerast í einu, allt frá hækkandi verðlagi til vaxandi stríðsþreytu. Það er erfitt að segja hversu stór hluti þess skýrist af þessum takmörkunum einum og sér.“

Komment