
VíðistaðaskóliEr staðsettur í Hafnarfirði
Mynd: Hafnarfjarðarbær
Staða skólastjóra Víðistaðaskóla er nú í ráðningaferli en alls bárust sjö umsóknir um stöðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Skólastjóri Víðistaðaskóla lét af störfum í mars og færði sig yfir í annað starf, í kjölfar þess að starfsfólk hafði í nóvember gert alvarlegar athugasemdir við störf hennar.
Umsækjendur
- Arnór Heiðarsson, forstöðumaður
- Dagný Vilhelmsdóttir, framhaldsskólakennari
- Guðmundur Stefán Gunnarsson, íþrótta og tómstundafulltrúi
- Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, sviðsstjóri
- Hjördís Bára Gestsdóttir, aðstoðarskólastjóri
- Íris Anna Steinarrsdóttir, skólastjóri
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, aðstoðarskólastjóri
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment