Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, tóku í vikunni þátt í hátíðardagskrá í Stokkhólmi í tilefni af 80 ára afmæli Karl XVI Gústaf.
Á meðan á heimsókninni stóð sóttu þau meðal annars guðsþjónustu í hallarkirkjunni, þáðu hádegisverð í ráðhúsi borgarinnar í boði borgarstjórnar og sátu hátíðarkvöldverð í konungshöllinni. Heimsóknin gaf forsetanum jafnframt tækifæri til að efla samskipti og tengsl við leiðtoga hinna Norðurlandanna.
Karl XVI Gústaf tók við embætti þjóðhöfðingja Svíþjóð árið 1973 og er sá konungur sem setið hefur lengst í Svíþjóð. Til hátíðarhaldanna komu þjóðhöfðingjar Norðurlandanna ásamt fjölda annarra leiðtoga og gesta víðs vegar að.
Mynd: Clément Morin/Kungl. Hovstaterna
Mynd: Clément Morin/Kungl. Hovstaterna
Mynd: Clément Morin/Kungl. Hovstaterna
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment