1
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

2
Innlent

Sjúklingur braut kynferðislega á ölvaðri stúlku á Landspítalanum

3
Innlent

Flóttamaður frá Gaza kveður Ísland eftir langa baráttu við kerfið

4
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

5
Heimur

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum

6
Minning

Stefán Jökulsson er látinn

7
Minning

Leikarinn Aðalsteinn Bergdal er fallinn frá

8
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

9
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

10
Sport

Enskur landsliðsmaður veður í Eggert og Björgólf

Til baka

Kristrún Frostadóttir hjólar í bæjarstjórn Kópavogs

„Núll lóðir á 10 árum er til skammar“

Kristrún Frostadóttir
Mynd: Víkingur

Forsætisráðherrann Kristrún Frostadóttir segir að úrslit komandi sveitarstjórnarkosninga skipti sköpum fyrir húsnæðismál landsins. Þetta kom fram í ræðu hennar á verkalýðskaffi sem Samfylkingafélagið stóð fyrir í Iðnó í dag í tilefni af 1. maí.

„Stærsta húsnæðismálið á Íslandi í dag er að Samfylking sigri í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí,“ sagði Kristrún og lagði áherslu á að flokkurinn þyrfti að ná árangri víða um land, ekki aðeins í Reykjavík heldur einnig í sveitarfélögum á borð við Kópavog og Hafnarfjörð.

Í ræðunni gagnrýndi hún sérstaklega stöðu húsnæðismála í Kópavogur og sagði óásættanlegt að þar hefði ekki verið úthlutað lóðum til leigufélagsins Bjarg íbúðafélag í áratug.

„Tíundi hver Íslendingur er Kópavogsbúi, en samt hefur bæjarstjórnin í Kópavogi ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs … Núll lóðir, á 10 árum, í næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Þetta er til skammar, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ sagði hún.

Kristrún fjallaði einnig um nýjan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og sagði samkomulag um 1.400 íbúðir á ríkislóðum í Reykjavík marka tímamót.

„Það eru ekki bara einhver plön sem birtast í glærum, heldur beinlínis uppbyggingarsamningar … Til að fjölga íbúðum, með skilyrði um að byggðar verði íbúðir fyrir alla tekjuhópa,“ sagði hún og spurði jafnframt hvers vegna fyrri ríkisstjórnir hefðu ekki nýtt lóðir fyrr.

Í ræðunni vék hún einnig að leikskólamálum og gagnrýndi svokallaðan „Kópavogsskatt“ á barnafjölskyldur.

„Við höfnum Kópavogsskattinum á barnafjölskyldur upp á 450 þúsund krónur á einu ári… Gjaldaleið Sjálfstæðisflokks gegn barnafjölskyldum er ekki rétta leiðin,“ sagði hún.

Þá ítrekaði hún að stefnt væri að því að lögfesta rétt barna til leikskólavistar með sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga, líkt og þekkist á hinum Norðurlöndunum. Hún sagði slíkt skref sambærilegt við stærstu sigrana í sögu verkalýðshreyfingarinnar.

Kristrún sagðist jafnframt undrandi á viðbrögðum pólitískra andstæðinga við þessum hugmyndum og benti á að þær byggðu meðal annars á vinnu breiðs hóps fulltrúa vinnumarkaðar og opinberra aðila.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

Ross vakti áður athygli þegar hún dæmdi Todd Chrisley í fangelsi
Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni
Myndband
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi
Heimur

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Króatar takmarka drykkju ferðamanna
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu
Myndir
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar
Heimur

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana
Myndband
Heimur

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið
Heimur

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum
Heimur

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Helga Vala styður ákvörðun Hildar um samstarf
Pólitík

Helga Vala styður ákvörðun Hildar um samstarf

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Loka auglýsingu