Úttekt sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) gerði á Matvælasjóði sýnir að á árunum 2020-2024 hafi sjóðurinn skapað umtalsverðan ávinning fyrir íslenskan matvælageira og að meginmarkmið sjóðsins hafi náðst en þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Markmið úttektarinnar var að meta efnahagsleg og samfélagsleg áhrif sjóðsins og úthlutana ásamt áhrifum á styrkþega.
Samkvæmt yfirlýsingunni telur yfirgnæfandi meirihluti styrkþega, eða um 90%, að styrkir Matvælasjóðs hafi verið grundvallarforsenda þess að verkefni þeirra næðu fram að ganga. Flestir sögðu að verkefnin hefðu ekki orðið að veruleika án styrksins.
„Þessi úttekt RHA staðfestir mikilvægi Matvælasjóðs fyrir verðmætasköpun í matvælageiranum“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra um málið. „Við leggjum áherslu á samkeppnishæfni og nýsköpun, fram komnar ábendingar um mögulegar úrbætur munu einnig nýtast við þróun og starfsemi sjóðsins“


Komment