
Bandarískur karlmaður á áttræðisaldri var handtekinn í Cherokee-sýslu í Georgíu-ríki í síðustu viku eftir að hann er sagður hafa ekið jeppa sínum á hóp hjólreiðamanna í meintu reiðikasti í umferðinni.
Maðurinn, sem heitir Jerry Wayne Ross og er 72 ára gamall, var handtekinn af lögreglu á svæðinu eftir atvikið. Mynd sem tekin var við skráningu hans í fangageymslu hefur vakið athygli þar sem hann brosir breitt framan í myndavélina.
Samkvæmt frétt FOX 5 Atlanta hafði Ross ekið á eftir hópi frá hjólreiðafélaginu North Georgia Cycling Association um tíma og ítrekað þeytt flautu áður en hann á að hafa ekið á tvo hjólreiðamenn með bifreið sinni, Honda Pilot-jeppa.
Leiðtogi hópsins, Richard Collins, sagði að einn hjólreiðamaður hefði orðið fyrir höggi frá hliðarspegli bifreiðarinnar áður en Ross ók síðan á hann sjálfan.
Collins sagði að hann hefði litið til vinstri og þá séð bifreiðina koma að sér. Skömmu síðar hafi hún lent á vinstri fæti hans með þeim afleiðingum að hann féll af hjólinu á meðan jeppinn hélt áfram akstri.
Hann hlaut meðal annars skrámur og bakverki við slysið. Við læknisskoðun kom síðar í ljós að neðri hluti hryggjar hans hafði brotnað.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fannst Ross skömmu síðar við hús nágranna í nágrenninu. Við yfirheyrslur á hann að hafa kennt hjólreiðafólkinu um atvikið og sagt það hafa verið fyrir á veginum.
Ross hefur verið ákærður fyrir sex brot, þar á meðal fyrir að yfirgefa slysstað, hættulegan akstur og að hafa ekki haldið öruggri fjarlægð frá hjólreiðafólki.

Komment