
Í dagbók lögreglu frá því í nótt og í gær er greint frá því að tilkynnt hafi verið um líkamsárás skömmu fyrir miðnætti og talað um hnífstungu. Einn var fluttur á slysadeild með minni háttar áverka. Meintur gerandi fannst fljótlega og var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynnt var um hópslagsmál fyrir utan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Nokkrir voru handteknir vegna málsins að sögn lögreglu og var einn fluttur á slysadeild.
Einn einstaklingur var kærður fyrir vopnalagabrot og svo látinn laus eftir skýrslutöku en lögreglan veitti ekki neinar upplýsingar um hvernig vopn var að ræða.
Tilkynnt var um ungmenni að kasta steinum í bifreiðar. Nokkuð tjón var eftir grjótkastið. Var málið leyst með aðkomu forráðamanna.
Ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur en hann mældist á 153 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.
Tilkynnt var um vinnuslys en þar hafði maður fallið fjögurra metra af vinnupalli og niður á jörðu. Var hann fluttur á slysadeild til skoðunar.
Komment